Skotárás í New York: Sendi tölvupóst á dagblað áður en hann hóf árásina Hulda Hólmkelsdóttir skrifar 1. júlí 2017 22:33 Frá vettvangi í gær. Vísir/Getty
Maðurinn sem myrti lækni og særði sex aðra þegar hann hóf skotárás á Bronx-Lebanon sjúkrahúsinu í New York í gær hafði sent tölvupóst á dagblaðið New York Daily News áður en árásin átti sér stað. Frá þessu greinir blaðið sjálft í dag og birti skjáskot af tölvupóstinum. Árásarmaðurinn hét Henry Bello en hann var íklæddur hvítum læknaslopp þegar hann fór upp tvær hæðir spítalans, hóf skothríð áður en hann reyndi að kveikja í sjálfum sér áður en hann loks skaut sjálfan sig og lést. Læknirinn sem Bello myrti hét Tracy Sin-Yee Tam og var 32 ára gömul. Sex aðrir eru særðir, þar af fimm alvarlega.Í tölvupósti Bello til New York Daily News segir að sjúkrahúsyfirvöld Bronx-Lebanon hafi eyðilagt starfsferil hans með því að koma í veg fyrir að hann fengi leyfi til að starfa sem læknir í New York ríki. Bello lærði til læknis í Samveldinu Dóminíku í Karíbahafinu. „Fyrst var mér sagt að það væri því ég héldi mér fyrir sjálfan mig. Svo var það vegna deilna við hjúkrunarfræðing,“ segir í bréfinu. Hann sagði að hann hafi verið sakaður um að hóta samstarfsmanni og að þær ásakanir væru ekki á rökum reistar. Bréfið virtist ekki gefa til kynna að hann ætlaði sér að beita neinu ofbeldi.Bello var gert að láta af störfum á Bronx-Lebanon árið 2015 vegna ásakana um kynferðislega áreitni. Samkvæmt frétt The Guardian var hann handtekinn árið 2004 eftir að 23 ára kona sakaði hann um kynferðisofbeldi. Hann var aftur handtekinn árið 2009 eftir að tvær konur kærðu hann fyrir kynferðislega áreitni eftir að hann reyndi að horfa undir pils þeirra með spegli.
Tengdar fréttir Skotárás á sjúkrahúsi í New York Tveir skotnir. 30. júní 2017 19:49 Klæddur í hvítan læknaslopp vopnaður byssu Tveir eru látnir og nokkrir særðir eftir skotárásina á Bronx Lebanon sjúkrahúsinu í New York í Bandaríkjunum fyrr í kvöld. 30. júní 2017 21:34 Mest lesið Líkamsleifar manns úr Sverris sögu frá 1197 fundnar Erlent Gömul sár opnuð á ný og stofnar stuðningshóp Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Sjá mikil batamerki eftir háþrýstimeðferð Innlent Áslaug um fartölvuna: „Það er alltaf reynt að gera stórmál úr svona hlutum“ Innlent Aukin netöryggisógn, götulokanir og vopnuð lögregla á Íslandi næstu daga Innlent „Ef ég væri kóngur myndi ég heita Valtýr sautjándi“ Innlent Ætluðu að hringsóla yfir Eyjar þegar flugvélarnar skullu saman Innlent Þingmanni vikið úr Verkamannaflokknum eftir líkamsárás Erlent Treystir Bjarna betur en öðrum forystumönnum Innlent Fleiri fréttir Líkamsleifar manns úr Sverris sögu frá 1197 fundnar Þingmanni vikið úr Verkamannaflokknum eftir líkamsárás Ætla ekki að viðurkenna úrslitin og kalla eftir mótmælum Vannærðir hermenn Kim sagðir „fallbyssufóður“ Flutningabíl ekið inn í þvögu í Tel Aviv Lokaði unnustann í ferðatösku þar til hann lést Vilja nota Patriot-kerfi á skipum til að skjóta niður kínverskar eldflaugar Sagður hafa stöðvað stuðningsyfirlýsingu Óttast umsátur og ofbeldi við kjörstaði Íranar segja skaðann „takmarkaðan“ eftir árásir næturinnar Ísrael gerir loftárás á Íran Víðfrægur rappari grunaður um að ráða launmorðingja Ógnarstór loftsteinaárekstur eins og áburður fyrir líf á jörðinni Enn allt í járnum skömmu fyrir kjördag Stýrivextir ná sögulegu hámarki í Rússlandi Óvinsæll Trudeau ætlar ekki að víkja Gagnrýnd fyrir að heiðra minningu fallinna fasista Musk sagður í reglulegum samskiptum við Pútín Springsteen studdi Harris og Trump ræðir við Joe Rogan Baráttan um Bandaríkin: „Hann veit hvað hann er að gera“ Neitar ekki liðsstyrk frá Norður-Kóreu Leggur til að Menendez bræðrunum verði sleppt á reynslulausn Gerðu loftárásir á Kúrda í Írak og Sýrlandi Einn látinn eftir að lest fór af sporinu í Noregi Segir spjallþjarka bera ábyrgð á sjálfsvígi sonar hennar Vísaði skjalamálinu frá og á lista yfir mögulega dómsmálaráðherra Hótar því að banna georgísku stjórnarandstöðuna Rýnt í stöðuna í Úkraínu: „Einstaklega blóðugur“ september Meirihluti Frakka telur lýðræðið ekki virka Segir Trump fasista sem dáist að einræðisherrum Sjá meira
Klæddur í hvítan læknaslopp vopnaður byssu Tveir eru látnir og nokkrir særðir eftir skotárásina á Bronx Lebanon sjúkrahúsinu í New York í Bandaríkjunum fyrr í kvöld. 30. júní 2017 21:34