Fótbolti

Kári og félagar upp að hlið Celtic

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Kári Árnason.
Kári Árnason. vísir/getty
Kári Árnason og félagar í Aberdeen áttu ekki í miklum vandræðum með St.Johnstone þegar liðin mættust í skosku úrvalsdeildinni í dag.

Kári lék allan leikinn í hjarta varnarinnar og hjálpaði Aberdeen að halda hreinu annan leikinn í röð.

Adam Rooney sá um markaskorun Aberdeen í dag en hann skoraði öll mörkin í 3-0 sigri.

Á sama tíma tapaði Celtic stigum því þeir gerðu 2-2 jafntefli við Hibernian. Úrslit dagsins þýða að Aberdeen og Celtic deila toppsætinu, hafa bæði 20 stig eftir átta umferðir.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×