Fótbolti

Berglind Björg hetja Verona

Anton Ingi Leifsson skrifar
Berglind Björg skoraði sigurmarkið í dag.
Berglind Björg skoraði sigurmarkið í dag. vísir/instagram síða Berglindar
Berglind Björg Þorvalsdóttir skoraði sigurmark Verona í ítölsku A-deildinni í knattspyrnu í dag, en þetta var fyrsta mark Berglindar fyrir Verona.

Staðan var jöfn 2-2 þegar sex mínútur voru eftir en Eyjastúlkan knáa náði þá að tryggja Verona sterkan útisigur.

Berglind hefur því spilað tvo leiki fyrir Verona og skorað eitt mark, en hún hefur spilað allan tímann í báðum leikjunum.

Verona er með fjögur stig eftir fyrstu tvo leikina, en ítalska deildin er nýfarin af stað.

Nánar verður rætt við Berglindi um lífið á Ítalíu í Fréttablaðinu á mánudag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×