Innlent

Lögreglan á Selfossi lýsir eftir eiganda peningaseðla

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Myndin er reyndar ekki af seðlunum sem fundust á Selfossi en lögreglan lýsir eftir eiganda þeirra.
Myndin er reyndar ekki af seðlunum sem fundust á Selfossi en lögreglan lýsir eftir eiganda þeirra. Vísir/Valli
Peningaseðlar fundust á bílastæði á Selfossi um klukkan níu í gærmorgun fyrir framan atvinnuhúsnæði í bænum.

Lögreglan lýsir nú eftir eiganda seðlanna þar sem heiðvirður borgari tíndi þá saman og kom þeim til lögreglunnar.

Sá sem hefur týnt peningunum getur vitjað þeirra á lögreglustöðinni á Selfossi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×