Innlent

Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2

Mikið framboð er nú af dýrum lúxusíbúðum á höfuðborgarsvæðinu, en lítið bólar á minni og ódýrari eignum. Finna má dæmi um fermetraverð upp á 800 þúsund krónur í kringum miðborg Reykjavíkur, en fjallað verður nánar um þetta í fréttum Stöðvar tvö klukkan hálf sjö.

Þar förum við líka yfir ríkisstjórnarmyndunina sem nú er á lokametrunum og rýnum í jarðhræringar, en fimm af öflugustu eldstöðvum Íslands sýna nú merki um að þær séu að undirbúa eldgos. Loks hittum við hundinn Samson sem heimsækir hjúkrunarheimili í hverri viku og elskar vinnuna sína. Þetta og margt fleira í fréttum Stöðvar tvö í opinni dagskrá klukkan 18.30.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×