Sport

Katrín Tanja og Sara sýna hvar þær æfðu fyrir heimsleikana í Crossfit | Myndband

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Katrín Tanja Davíðsdóttir og Ragnheiður Sara Sigmundsdóttir.
Katrín Tanja Davíðsdóttir og Ragnheiður Sara Sigmundsdóttir. Vísir/Samsett/CrossFit
Heimsleikarnir í crossfit hefjast á morgun og í aðdraganda keppninnar var vel fylgst með þeim keppendum sem enduðu í efstu sætunum á heimsleikunum í fyrra.

Í þeim flotta hópi eru meðal annars tvær öflugar íslenskar stelpur en Katrín Tanja Davíðsdóttir vann heimsleikana annað árið í röð og Ragnheiður Sara Sigmundsdóttir varð í þriðja sætinu annað árið í röð.

Tia-Clair Toomey frá Ástralíu varð önnur en í fjórða sæti var hin breska Sam Briggs sem vann heimsleikana árið 2013.  

Fulltrúar Crossfit leikanna heimsóttu þær Katrínu Tönju, Söru, Toomey og Briggs þar sem þær voru að hefja lokaundirbúning sinn fyrir heimsleikana. Nú er hægt að horfa á myndband með viðtölum við þær fjórar auk þess hægt að fylgjast með þeim undirbúa sig fyrir átökin.

Heimsleikarnir fara fram í Madison í Wisconsin-fylki og standa yfir frá 3. til 6. ágúst. Leikarnir eru aðeins seinna í ár en undanfarin ár þegar þeir voru í Carson í Kaliforníu-fylki.

Það er fróðlegt að sjá og heyra muninn á æfingaaðstöðu og æfingum bestu crossfit-kvenna heimsins á síðasta ári.

Sam Briggs var heima hjá sér í Manchester en Tia-Clair Toomey flaug til San Diego við landamæri Bandríkjanna og Mexíkó.

Íslensku stelpurnar urðu að undirbúa sig fyrir hitann, rakann og allar þær krefjandi aðstæður sem bíða þeirra í keppninni. Þær voru því ekki heima á Íslandi heldur fóru þær til Bandaríkjanna og fundu sér báðar flotta staði sem þær tala báðar vel um þá í umræddu myndbandi.

Katrín Tanja Davíðsdóttir æfði á Cape Cod eða Þorskhöfða en það er stór L-laga höfði sem tilheyrir Barnstable-sýslu í Massachusetts á austurströnd Bandaríkjanna.

Ragnheiður Sara Sigmundsdóttir æfði aftur á móti Cookeville í Tennessee-fylki sem er í suðausturhluta Bandaríkjanna.

Hér fyrir neðan má sjá myndbandið með fjórum bestu crossfit-konum heimsins árið 2016. Hvar þær lenda árið 2017 verður síðan að koma í ljós.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×