Orrustan um Raqqa er hafin Atli Ísleifsson skrifar 6. júní 2017 08:53 ISIS lýsti Raqqa sem höfuðborg ríkis þeirra í júní 2014, nokkrum mánuðum eftir að hafa náð völdum í borginni sem er í norðurhluta Sýrlands. Vísir/AFP
Orrustan um sýrlensku borgina Raqqa, helsta vígi hryðjuverjasamtakanna ISIS, er hafin. Frá þessu greina talsmenn kúrdíska bandalagsins SDF, sem nýtur stuðnings Bandaríkjastjórnar. Mannréttindasamtökin Syrian Observatory for Human Rights (SOHR) staðfesta einnig að árásir bandamanna á Raqqa hafi hafist í morgun. Talsmaður SDF segir að sótt sé að Raqqa út austri, vestri og norðri. Að sögn SOHR eiga að hafa verið gerðar árásir á herstöð í norðurhluta Raqqa og í Mashab í austurhlutanum. „Þær byrjuðu í morgunsárið,“ segir Rami Abdel Rahman, yfirmaður SOHR. Um helgina lýsti talsmaður SDF því yfir að aðgerðir til að ná borginni aftur úr höndum ISIS myndu hefjast „innan fárra daga“. Sveitir bandamanna hafa sótt í átt að borginni síðan í nóvember með það að markmiði að umkringja hana og loka þannig birgðaleiðum ISIS-liða. Bandaríkjastjórn greindi frá því í síðustu viku að verið væri að koma vopnum til sveita SDF áður en sóknin inn í Raqqa myndi hefjast. Tyrklandsstjórn er mótfallin slíku þar sem hún flokkar SDF sem hryðjuverkasamtök. ISIS lýsti Raqqa sem höfuðborg ríkis þeirra í júní 2014, nokkrum mánuðum eftir að hafa náð völdum í borginni sem er í norðurhluta Sýrlands. Áætlað er að milli þrjú og fjögur þúsund liðsmenn ISIS séu nú í borginni þar sem búa rúmlega 200 þúsund manns.
Mest lesið Bað soninn um að halda sig í herberginu meðan árásin átti sér stað Innlent „Þá er þetta komið út fyrir öll velsæmismörk“ Innlent Fundu tvö dæmi um Kjartann en samt virðist enginn hafa borið nafnið Innlent Reyndist vera eftirlýstur Innlent „Faðir minn stakk rýtingi í bakið á mér“ Innlent Stór skjálfti í Bárðarbungu Innlent Búin að loka fyrir kort ungmenna á veðmálasíðum Innlent Framkvæmd við heljarstórt hús geti orðið mikil lyftistöng Innlent Vilja breyta Landsbankanum í samfélagsbanka Innlent Borgin, utanríkismálin og kjaradeila kennara Innlent Fleiri fréttir Þjóðverjar ganga að kjörborðinu: „Vinstrið er búið“ Hamas reiðubúin að láta af stjórn Gaza Segir Selenskí hugrakkan leiðtoga Kona sem sagðist vera Madeleine McCann handtekin Aftökur á stríðsföngum sagðar kerfisbundnar Þjóðverjar ganga til kosninga um helgina Farnir að safna matvælum vegna fyrirhugaðra tollahækkana Alríkisdómari neitar að stöðva fjöldauppsagnir Afhentu óþekkt lík í stað Shiri Bibas Dómari skaut eiginkonu sína vegna rifrildis Bandaríkjastjórn neitar að kalla Rússa „árásaraðila“ Trump fetar í fótspor Breivik Afhentu lík yngstu gíslanna sem teknir voru frá Ísrael Trump geti „algerlega“ fellt mál niður af pólitískum ástæðum Ætlar í stórfelldan niðurskurð hjá hernum Trump segir Rússa hafa öll spil á hendi Trump titlar sig konung Danir ausa milljörðum í varnarmál Kallar Selenskí einræðisherra og varpar fram lygum Ákærð fyrir að bana barni fyrir hálfri öld Biður Trump-liða um að virða sannleikann Vildi eitra fyrir forsetanum og skjóta forseta hæstaréttar Segja Musk ekki stýra DOGE en neita að nefna yfirmann Grét í faðmi Rihönnu eftir sýknudóminn Virðist kenna Úkraínumönnum um stríðið og stöðu mála Frans páfi með lungnabólgu í báðum lungum Fullyrðir að aðeins Trump hefði getað komið á friðarviðræðum Nítján af 21 útskrifaðir af sjúkrahúsi Setja fúlgur fjár í herinn: Segir ástandið verra en í kalda stríðinu CIA flýgur herdrónum yfir Mexíkó Sjá meira