Komið að skuldadögum Þórdís Lilja Gunnarsdóttir skrifar 30. maí 2017 14:00 Kristín Sigurðardóttir er slysa- og bráðalæknir. Hún segir þungbært að geta ekki unnið á Landspítalanum. "Ég var sjúkrahúslæknir af lífi og sál og þetta var það sem ég hafði menntað mig til." MYND/EYÞÓR
Kristín Sigurðardóttur, slysa- og bráðalæknir, er ein sex lækna úr 30 manna árgangi í læknisfræðinni sem hafa veikst vegna rakaskemmda og myglu í húsnæði LSH og heilsugæslu. Hún segir mikilvægt að umræða um vandann sé fagleg og fordómalaus. Læknadagar eru haldnir á ári hverju af Fræðslustofnun Læknafélags Íslands og fóru fram í Hörpu í janúar. Meðal dagskrárliða á Læknadögum nú var málþingið "Áhrif umhverfis á öndunarfæri og ónæmiskerfi; Rakaskemmdir í húsnæði og áhrif á heilsu“, að frumkvæði Kristínar Sigurðardóttur, slysa- og bráðalæknis. „Ástæðan fyrir þessu málþingi á Læknadögum, sem skipulagt var með félögum lungna- og ofnæmislækna, var sú staðreynd að heilsutjón af völdum rakaskemmda í húsnæði og myglu virðist vaxandi vandamál í íslensku samfélagi. Mér þótti mikilvægt að við reyndum að átta okkur á umfangi vandans og fá um hann fordómalausa og faglega umræðu. Því var kallað að borðinu fagfólk í læknastétt, sem hefur meðhöndlað fólk sem þjáðst hefur af þessum heilsufarsvanda, sem og efahyggjufólk til að ræða saman á gagnrýninn hátt. Það er áríðandi vegna þess að heilsutjón af völdum myglu og rakaskemmda hefur hingað til verið misjafnlega vel viðurkennt en á sama tíma verðum við að horfast í augu við þann veruleika að við erum með lasið fólk og þurfum að hjálpa því að komast til heilsu.“ Kristín þurfti sjálf að hverfa frá störfum sem bráðalæknir á Landspítalanum vegna sjúkdómseinkenna af völdum rakaskemmda og myglu á vinnustaðnum. Á sviðið í Hörpu stigu fleiri læknar sem hafa veikst í heilsuspillandi húsnæði í starfi. „Við sögðum stuttlega frá okkar sögu og líka hvaða neikvæðu áhrif þetta getur haft á þá starfsemi sem á að fara fram á vinnustaðnum, og hvað þá mögulega á sjúklingana. Við erum sex af um þrjátíu manna árgangi í læknisfræðinni sem hafa veikst vegna þessa, fjórir læknar á LSH og tveir í húsnæði heilsugæslu.“ Kristín segir þungbært að geta ekki unnið á spítalanum. „Ég var sjúkrahúslæknir af lífi og sál og þetta var það sem ég hafði menntað mig til. Fleiri starfsmenn Landspítalans hafa fundið fyrir einkennum vegna húsnæðisins og einhverjir hafa þurft að hætta í starfi á spítalnum vegna veikinda tengdra því.“ Á tímum uppsveiflu í íslensku hagkerfi og yfirstandandi góðæris þykir Kristínu vansi að Landspítalinn njóti þess ekki, meðal annars í viðhaldi á húsakosti. „Mér þykir mjög miður hvernig farið hefur verið með Landspítalann; við urðum í reynd aldrei vör við góðæri þar. Í alltof langan tíma hefur húsnæði LSH ekki verið viðhaldið sem skyldi og fé sem hefði þurft í að veita viðhald þurft að nýta í rekstur. Nú er komið að skuldadögum. Viðurkennt er að víða í húsnæði spítalans finnast rakaskemmdir með þeim örveruvexti sem því getur fylgt. Mér finnst líka algjörlega óásættanlegt í okkar þjóðfélagi að við bjóðum veikasta fólkinu í landinu upp á heilsuspillandi húsnæði, ásamt öllu því góða starfsfólki sem reynir að sinna því eftir bestu getu, stundum á kostnað eigin heilsufars. Það er brýnt að umræðan um þennan vanda sé fagleg og fordómalaus. Við þurfum frekari rannsóknir, að leita úrræða og allra leiða til að koma í veg fyrir heilsuspillandi húsnæði.“Læknarnir María I. Gunnbjörnsdóttir, Unnur Steina Björnsdóttir, Kristín Sigurðardóttir, Dóra Lúðvíksdóttir og Sigríður Ólína Haraldsdóttir skipulögðu málþing um tengsl rakaskemmda og sjúkdóma á Læknadögum í janúar í samstarfi við Félag ofnæmislækna og Félag lungnalækna, með stuðningi Læknafélags Íslands.MYND/LÆKNABLAÐIÐÝmsir sjúkdómar tengjast mygluUnnur Steina Björnsdóttir er sérfræðingur í lyflækningum, ofnæmissjúkdómum og ónæmisfræði. Hún segir viðurkennt innan læknastéttarinnar að mygla og rakaskemmdir hafi slæm áhrif á heilsufar en mörgu sé enn ósvarað. Sjúkdómseinkenni vegna rakaskemmda og myglu í húsnæði eru ekki nýtt vandamál enda til heimildir allt frá árinu 1974 þar sem Jón Pétursson læknir lýsir þessu á Íslandi. „Ofnæmi og astmi tengt myglu er vel rannsakað,“ segir Unnur Steina. „Það er ljóst að bæði eru ofnæmi og astmi algengari nú, auk þess að vera erfiðari viðureignar ef menn dvelja í húsnæði þar sem fyrir er raki og mygla. Einnig að börn sem dvelja á fyrsta aldursári í umhverfi þar sem er mygla, eru líklegri til að mynda með sér bæði ofnæmi og astma síðar á lífsleiðinni.“ Unnur Steina segir mikilvægt að greina ofnæmi og astma með húðprófum, blóðrannsóknum og öndunarmælingum, auk þess að taka góða sjúkrasögu. Síðan er ráðlagt að forðast húsnæði sem geti verið heilsuspillandi og valdið þessum einkennum. Á hinn bóginn séu fæstir þeirra sem hafa einkenni tengd rakaskemmdum í húsnæði með jákvæð húðpróf fyrir myglu. Mögulegt sé að annars konar ræsing á ónæmiskerfinu eigi sér stað. „Dvöl í mygluhúsnæði getur líka valdið því að einstaklingur svari síður meðferð, til dæmis innúðasterum. Astmi og ofnæmi sem tengist myglu er meðhöndlað með hefðbundinni meðferð: innúðasterum, berkjuvíkkandi lyfjum og andhistamínum, eftir alvarleika sjúkdómsins. Mikilvægast er þó að sjúklingurinn dvelji ekki í húsnæði þar sem grunur er um rakaskemmd eða myglu,“ upplýsir Unnur Steina og bætir við: „Í raun er ekki til önnur meðferð við þessum einkennum en sú að ganga út og forðast húsið sem veldur þeim. Rannsóknir hafa verið gerðar á lyfjum við einkennunum en þær eru ekki komnar nógu langt til að hægt sé að slá neinu föstu.“ Að sögn Unnar Steinu hefur öðrum einkennum verið lýst og af sumum talin tengjast myglu, svonefnt CIRS (Chronic inflammatory response syndrome). Rannsóknir á þessum tengslum eru enn skammt á veg komnar og enn síður á meðferð. Eitthvað hefur verið reynt að gefa lyfið Questran, sem notað er til lækkunar á blóðfitu, en virka efnið í því er nefnt cholestyramín. Hins vegar er ekki ábending fyrir notkun lyfsins við þessum einkennum. „Til að lausnir finnist á mygluvanda þarf aukinn vilja og áhuga yfirvalda og stjórnenda fyrirtækja og stofnana að rannsaka frekar áður en skaðinn magnast. Það þarf að skoða hvort breyta þurfi byggingaraðferðum hér á landi til að koma í veg fyrir vandann. Læknisfræðilega er orsakasamband myglu og þessara sjúkdóma enn umdeilt. Vitað er að um 20 prósent þeirra sem dvelja í rakaskemmdu húsnæði veikjast. Því er nauðsynlegt að rannsaka hvers vegna sumir eru næmir en aðrir ekki; hvaða þættir valda veikindunum og hvaða ráð eru til að bæta heilsu þeirra sem þegar eru veikir,“ segir Unnur Steina.Þórdís Lilja Gunnarsdóttir
Mest lesið Leiðtogi Hezbollah allur Erlent „Óþekku börnin frá Grindavík“ vakti úlfúð Innlent Drakk beint úr könnunni og svelgdist á Erlent Mennirnir tveir fundnir Innlent Sagður hafa nauðgað konu fyrir níu árum Innlent Brynjar ákærður fyrir að brjóta á fleiri stúlkum Innlent Brotthvarf Katrínar hafði mikil áhrif Innlent Hefur þrisvar komið að 13 ára syni sínum meðvitundarlausum Innlent Líf segir söguna um stóladans Mörtu og Hildar dagsanna Innlent Þyrlan kölluð út vegna fjórhjólaslyss Innlent Fleiri fréttir „Við vitum ekki neitt og höldum bara áfram að bíða“ Ótrúlegt myndband af gæsaflokki á flugi Ávaxtakarfan frumsýnd í Hveragerði Lítið jökulhlaup hafið í Skálm Uppgjör á hægri vængnum: „Ægishjálmur Sjálfstæðisflokksins“ ekki lengur veruleikinn Sundrun á hægri vængnum og örvænting meðal fyrstu kaupenda Verslaði fyrir háar upphæðir með stolnu kreditkorti „Ég hitti ungt fjölskyldufólk sem er gjörsamlega að kikna“ Þyrlan kölluð út vegna fjórhjólaslyss Ullarvika til heiðurs íslensku sauðkindinni „Óþekku börnin frá Grindavík“ vakti úlfúð Verkfall á hjúkrunarheimilum ef lausn næst ekki á mánudag „Verðmæti fólgin í því að halda Reykjanesbraut opinni“ Úrbætur á gæsluvarðhaldsúrræði fyrir unglinga og upphaf körfuboltatímabilsins Skoða betri úrræði fyrir unglinga í gæsluvarðhaldi Brotthvarf Katrínar hafði mikil áhrif Hafði „útdraganlega kylfu“ meðferðis Nýliðar hlakka til að láta að sér kveða: „Finnst vanta fólk eins og mig“ Draumurinn að fríbúðir skjóti upp kollinum um alla borg Ekki hægt að aldursskipta börnum á Stuðlum í miðjum stormi „Skítastaða“ á Stuðlum, vongóðir nýliðar og búð þar sem allt er ókeypis „Það verður að láta reyna á þessar kærur“ Listamaðurinn Jón Gnarr hættir og pólitíkusinn tekur við Líf segir söguna um stóladans Mörtu og Hildar dagsanna Hlaut varanlegan skaða vegna myglu en fær ekki krónu Marta hafnar því alfarið að hafa ítrekað sest í stól Hildar Unglingar á ofsahraða reyndu að stinga lögregluna af Mennirnir tveir fundnir Hólmfríður ætlar í ritara VG Til skoðunar að beita refsisköttum á nikótínpúða Sjá meira