Enski boltinn

Coutinho fjarri góðu gamni gegn Huddersfield

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Philippe Coutinho hefur skorað fjögur mörk fyrir Liverpool á tímabilinu.
Philippe Coutinho hefur skorað fjögur mörk fyrir Liverpool á tímabilinu. vísir/getty
Philippe Coutinho verður ekki með Liverpool í leiknum gegn Huddersfield á morgun.

Brasilíumaðurinn er meiddur í mjöðm og verður ekki klár í slaginn í tæka tíð fyrir leikinn.

Coutinho var meiddur í upphafi tímabils en kom svo sterkur inn í lið Liverpool. Hann hefur skorað fjögur mörk í níu leikjum á þessu tímabili.

Liverpool, sem er án sigurs í síðustu þremur leikjum, situr í 9. sæti ensku úrvalsdeildarinnar með 13 stig. Huddersfield er í 11. sætinu með 12 stig.

Leikur Liverpool og Huddersfield hefst klukkan 14:00 á morgun og verður sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.


Tengdar fréttir

Hefur aldrei séð annan leikmann eins og Rhian

Liverpool-strákurinn Rhian Brewster hefur skorað þrennu í tveimur leikjum í röð í útsláttarkeppni HM 17 ára landsliða í Indlandi og hefur með því hjálpað enska landsliðinu alla leið í úrslitaleikinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×