Segir að Gylfi sé lykillinn að upprisu Everton Tómas Þór Þórðarson skrifar 27. október 2017 09:00 Gylfi Þór Sigurðsson gæti fengið meira pláss um helgina. Vísir/Getty
Enski blaðamaðurinn Joe Fish skrifar stuttan pistil um Everton á vefsíðuna Here in the City þar sem hann segir að Gylfi Þór Sigurðsson sé lykilmaðurinn ætli liðið sér að komast upp úr holunni sem það er búið að grafa sér. Fish er bjartsýnn fyrir hönd Everton eftir að Ronald Koeman var látinn fara og David Unsworth tók við sem bráðabirgðastjóri. Unsworth tapaði fyrsta leiknum sínum gegn Chelsea í deildabikarnum í vikunni en það voru batamerki á liðinu. „Liðsval Unsworth sýndi um leið hvað Koeman var að gera rangt. Hann var fljótur að setja Kevin Mirallas og Aaron Lennon, sem eru ekki búnir að byrja einn einasta leik í úrvalsdeildinni, í liðið,“ segir Fish. Með þessu kom meiri hraði og vídd inn í Everton-liðið en það hefur einmitt verið harðlega gagnrýnt fyrir að vera hægt og að spila ansi þröngt. Þá hefur Gylfi Þór Sigurðsson verið geymdur úti á kanti en það ætti að breytast um helgina á móti Leicester. „Ef Unsworth heldur sig við vængmennina á sunnudaginn ætti það að hjálpa til við að fá það besta út úr Gylfa Sigurðssyni,“ skrifar Fish. „Maðurinn sem var keyptur í sumar var ónotaður varamaður á móti Chelsea en líklega var bara verið að hvíla hann. Hann mun njóta þess að fá að spila aftur í holunni nú þegar Unsworth er byrjaður að nota kantmenn.“ „Gylfi er lykilinn að upprisu Everton en það getur teygt aðeins á vellinum fyrir hann að spila með Lennon og Mirallas með sér. Það ætti að búa til plásssið sem Gylfi þar til að spila jafnvel og í fyrra þegar að hann skoraði níu mörk og gaf þrettán stoðsendingar fyrir Swansea,“ segir Joe Fish.
Enski boltinn Mest lesið Bein útsending: Hildur hætti eftir 30. hring og nú eru níu eftir Sport Rakel María endaði upp á spítala: „Ég á bara ótrúlega erfitt“ Sport Liverpool tyllti sér á toppinn Enski boltinn FIFA setur Viðar Örn í sex mánaða bann Fótbolti Skiptar skoðanir á nýju merki Njarðvíkur Körfubolti Besti dómarinn í deildinni á von á sínu þriðja barni Fótbolti Stones tryggði City sigur í uppbótatíma Enski boltinn Albert fór meiddur af velli en liðið fór á kostum Fótbolti Í beinni: Haukar - Cocks | Hanar í heimsókn Handbolti Hættir að elska Jürgen Klopp: „Hefur þú gleymt öllu?“ Fótbolti Fleiri fréttir Liverpool tyllti sér á toppinn Stones tryggði City sigur í uppbótatíma Everton vann og endurkomusigrar hjá Leicester og Villa Arsenal mistókst að koma sér á toppinn Langþráð og laglegt mark Höjlund tryggði Man. Utd sigurinn Willum Þór með mikilvægt mark í endurkomusigri Þrjú mörk á sjö mínútum í sannfærandi sigri Spurs Eigandinn þuklaði á fyrirliða kvennaliðsins Í leyfi eftir að hafa misst fjögurra mánaða afabarn „Ævintýri og lygar í boði sumra ykkar“ Mainoo frá í nokkrar vikur Ræddu við tíu en fáir kannast við símtal Vilja prófa að leyfa áfengi á kvennaleikjum í Englandi Pogba segir að danssagan sé lygi Beckham sárnar hvernig fólk lítur á ferilinn hans Labbar mest af öllum í ensku úrvalsdeildinni Allt bendir til þess að Liverpool missi Trent í sumar Eiginkona Kyle Walker sækir um skilnað Neville um Tuchel: „Ákveðin vonbrigði“ Sir Alex bannað að fara inn í klefann eftir leiki Tuchel skrifaði undir samninginn fyrir átta dögum Æfur út í eigendur Man. Utd: „Hendi þeim öllum í risapoka af skít“ Tuchel tekur við enska landsliðinu Stjóri Arsenal sagði upp eftir slaka byrjun Sir Alex slapp ekki við niðurskurðarhnífinn hjá Man. United Stjóri Stuttgart hafnaði United Dagný kom við sögu í jafntefli West Ham Saka hefði getað spilað gegn Finnum Salah farinn heim til Liverpool: Ofbeldisfullir andstæðingar og hættulegur völlur Síðasta tímabil Haaland með Manchester City? Sjá meira