Fótbolti

Viðar með tvö í bikarsigri | Hólmar kynntur til leiks hjá Maccabi Haifa

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Viðar Örn var á skotskónum í dag.
Viðar Örn var á skotskónum í dag. vísir/getty
Viðar Örn Kjartansson skoraði tvívegis þegar Maccabi Tel Aviv tryggði sér farseðilinn í 16-liða úrslit ísraelsku bikarkeppninnar með 0-3 sigri á Hapoel Bnei Lod á útivelli í dag.

Viðar kom Maccabi yfir á 22. mínútu og fjórum mínútum síðar skoraði hann sitt annað mark.

Reynsluboltinn Yossi Benayoun, fyrrverandi leikmaður Liverpool, Chelsea og fleiri liða, skoraði svo þriðja mark Maccabi á 57. mínútu og gulltryggði sigurinn.

Hólmar Örn Eyjólfsson var kynntur til leiks hjá Maccabai Haifa fyrir leik liðsins gegn Maccabi Petah Tikva í 32-liða úrslitum bikarkeppninnar.

Hólmar kom þó ekkert við sögu í 0-2 tapi Maccabi Haifa.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×