Innlent

Óskar eftir lausn frá störfum sem rektor Landbúnaðarháskólans

atli ísleifsson skrifar
Björn hefur starfað sem rektor LbhÍ frá 1. ágúst 2014.
Björn hefur starfað sem rektor LbhÍ frá 1. ágúst 2014. lbhí
Björn Þorsteinsson hefur óskað eftir lausn frá störfum sem rektor Landbúnaðarháskóla Íslands. Ákörðunin er tekin af persónulegum ástæðum og mun Björn hverfa aftur til prófessorstarfa innan skólans.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá skólanum.

„Háskólaráð LbhÍ mun í kjölfarið undirbúa auglýsingu um ráðningu nýs rektors í samstarfi við menntamálaráðuneytið. Fram að því mun Björn gegna starfinu.

Björn hefur starfað sem rektor LbhÍ frá 1. ágúst 2014 þegar hann var settur í starfið með stuttum fyrirvara. Megin verkefni sem þá biðu voru að snúa við hallarekstri skólans sem var orðinn mjög skuldugur við ríkissjóð. Viðsnúningur í rekstri hefur skilað afgangi síðastliðin tvö ár og vel hefur gengið að niðurgreiða skuldir skólans við ríkissjóð. Þessi niðurstaða og ákvörðun alþingis í kjölfarið um afskriftir skulda munu ef allar áætlanir ganga eftir, skila skuldlausum skóla í árslok 2017. Það eru því bjartir tímar framundan hjá Landbúnaðarháskólanum og nýr rektor mun taka við góðu búi,“ segir í tilkynningunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×