Samgönguráðherra lætur rannsaka öryggishlutverk Reykjavíkurflugvallar sunna karen sigurþórsdóttir skrifar 6. febrúar 2017 17:27 Engin ákvörðun hefur verið tekin um framtíðarstaðsetningu Reykjavíkurflugvallar segir samgönguráðherra. vísir/vilhelm
Jón Gunnarsson samgönguráðherra hefur ráðið starfsmann í samgönguráðuneytið til þess að rannsaka sérstaklega öryggishlutverk Reykjavíkurflugvallar. Hann segir að engin ákvörðun hafi verið tekin um framtíðarstaðsetningu flugvallarins en segist tilbúinn til þess að skoða það að opna neyðarbrautina svonefndu aftur. Þetta kom fram í máli Jóns við fyrirspurn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, þingmanns Framsóknarflokksins á Alþingi í dag. Jón sagði að í Rögnuskýrslunni svokölluðu, um framtíðarstaðsetningu Reykjavíkurflugvallar eða innanlandsflugsins, hafi ekki verið tekið tillit til þess öryggishlutverks sem Reykjavíkurflugvöllur hafi að gegna gagnvart landsmönnum. Því hafi þessi ákvörðun verið tekin. „Ég hef því ráðið tímabundið starfsmann í samgönguráðuneytið sem er sérstaklega að fara yfir þetta öryggishlutverk vallarins og þá í breiðum skilningi, ekki eingöngu gagnvart sjúkraflugi heldur bara almennt, öryggishlutverki og þá almannavarnahlutverki vallarins líka,“ sagði Jón. Aðspurður sagði hann enga ákvörðun hafa verið tekna um hugsanlegan flutning á starfsemi flugvallarins. Meðan slík ákvörðun hafi ekki verið tekin verði miðstöð innanlandsflugs á Reykjavíkurflugvelli í Vatnsmýri. „Hvað varðar hina löngu framtíð í þeim efnum verður bara að koma í ljós. Það er mörgum spurningum þar ósvarað varðandi bæði staðsetningar og kostnað við byggingu á mögulega nýjum velli sem gæti hýst þessa þjónustu. Ég hef því lagt á það mikla áherslu og mun leggja á það áherslu í viðræðum mínum við yfirvöld í borginni að við getum hafið sem fyrst framkvæmdir við uppbyggingu á þjónustumiðstöð fyrir starfsmenn og farþega á Reykjavíkurflugvelli,“ sagði Jón Gunnarsson á Alþingi í dag.
Mest lesið Engu um að kenna nema „handónýtu kerfi“ Innlent Sprautan umdeilda sem fólk er tilbúið að borga fyrir út ævina Innlent „Ekki næstum því allir íbúar með þetta app“ Innlent Banaslysið aftur til héraðssaksóknara Innlent Drottningin baðst afsökunar á því að geta ekki boðið betra veður Innlent Koma siglandi og sótt á hestvagni Innlent Grunaði í máli Madeleine McCann sýknaður af öðrum brotum Erlent Svikahrappurinn bjó í íbúð hinnar látnu í níu ár Innlent „Þú hugsar bara: Hver var skotinn?” Erlent „Mikið af slæmum genum í landinu okkar“ Erlent Fleiri fréttir Verður kominn í rafrænt eftirlit þremur árum eftir manndrápið Þingflokkurinn hafi ekki brotið persónuverndarlög Innan við helmingur nú hlynntur flugvelli í Vatnsmýri „Eins og við höfum verið að hitta gamla vini” Flugfreyjurnar segjast eiga sinn þátt í flugævintýrinu Söguleg heimsókn konungshjónanna í Jónshús Skrifstofustjóri með tuttugu ára reynslu nýr ráðuneytisstjóri Þorbjörg ætlar sér fyrsta sætið Drottningin baðst afsökunar á því að geta ekki boðið betra veður Engu um að kenna nema „handónýtu kerfi“ „Ekki næstum því allir íbúar með þetta app“ Sprautan umdeilda sem fólk er tilbúið að borga fyrir út ævina Banaslysið aftur til héraðssaksóknara Koma siglandi og sótt á hestvagni Íbúakosning verður haldin í Hafnarfirði Segir að verjast þurfi árásum á flugvöllinn með fullum hnefa Búið að byrgja brunninn Lopabuxur og geitavesti á tískusýningu í sveitinni Nýir aðilar ráðast í uppbyggingu Vesturbugtar Formenn stjórnarflokkanna hljóti að ræða framhaldið Orðinn „kokhraustur kvenhatari“ og tækifærissinni Stjórnlaus ásókn í megrunarlyf og „árás“ á flugvöll Svikahrappurinn bjó í íbúð hinnar látnu í níu ár Dómur yfir Alberti kveðinn upp á fimmtudag Með ófullnægjandi hjálm þegar banaslys varð „Það er af og frá að ég hafi brotið lög“ Fjölmenntu í Aðalbyggingu HÍ og vilja svör frá rektor „Þingflokkur Pírata braut á mér“ Áfram lokuð þar sem viðgerðirnar undu upp á sig Spurð hvort hún ætli sér ekkert meira en kennarastarf Sjá meira