Innlent

Trylltist og sparkaði í andlit lögreglumanns

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Frá Þorlákshöfn.
Frá Þorlákshöfn. Vísir/Rósa
Lögreglumenn af Suðurlandi voru kallaðir út að heimahúsi í Þorlákshöfn aðfaranótt sunnudags vegna gestkomandi manns sem hafði tryllst. Hafði maðurinn efnt til slagsmála fyrir utan húsið að því er segir í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurlandi.

Þegar lögreglumenn komu á staðinn lágu menn yfir honum og héldu. Lögreglumenn voru að ræða við manninn og róa þegar hann fyrirvaralaust sparkaði í andlit og fót eins lögreglumannsins.

Maðurinn var handtekinn og færður í fangageymslu og yfirheyrður. Málið mun verða sent til héraðssaksóknara sem fer með rannsókn mála er varða ofbeldi gagnvart opinberum starfsmönnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×