Erlent

ISIS-leiðtogi drepinn í áhlaupi í Afganistan

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Afganskir hermenn athafna sig í kjölfar árásar ISIS í Kabúl í mars síðastliðnum.
Afganskir hermenn athafna sig í kjölfar árásar ISIS í Kabúl í mars síðastliðnum. Vísir/AFP
Leiðtogi hryðjuverkasamtakanna ISIS í Afganistan, Abdul Hasib, hefur verið drepinn. Þetta segir í yfirlýsingu frá forseta landsins, Ashraf Ghani. BBC greinir frá.

Hasib er sagður hafa verið drepinn fyrir 10 dögum síðan í hernaðaraðgerðum afganskra yfirvalda í Nangarhar-héraði í austurhluta Afganistan.

Talið er að Hasib hafi skipulagt árás á herspítala í Kabúl, höfuðborg landsins, í mars síðastliðnum. 30 manns létust í árásinni.

Varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna hafði áður ýjað að því að bandarískar og afganskar hersveitir hefðu ráðið niðurlögum Hasib.

Í júlí 2016 létust 80 manns í Kabúl í sjálfsmorðsárás af hendi ISIS. Þá létust 30 manns í árás samtakanna á mosku þar í borg í nóvember sama ár.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×