Innlent

Eldur á Grímshaga

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Eldur logar í þaki hússins.
Eldur logar í þaki hússins. Vísir/anton
Allar stöðvar slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu hafa verið kallaðar út vegna elds á Grímshaga 8 í Vesturbæ Reykjavíkur.

Samkvæmt fréttaveitu slökkviliðsins logar eldur í þaki hússins en verið er að gera við það. Eldur var slökktur að mestu utan frá í upphafi en reykkafarar eru að störfum innan dyra og einnig á þaki.

Frá vettvangi í Vesturbænum.vísir/höskuldur
„Það var talsverður eldur í þakinu þegar við komum á staðinn. Þetta er hús sem er í mikilli viðhaldsvinnu og það var búið að rífa hluta af þakinu. Það er líka búið í hluta hússins en okkur er ekki kunnugt um hvort að iðnaðarmenn hafi verið að störfum núna í hádeginu eða í morgun,“ segir Sigurbjörn Guðmundsson, varðstjóri hjá slökkviliðinu, í samtali við Vísi.

Fjórir dælubílar, tveir körfubílar og tveir sjúkrabílar fóru á staðinn og segir Sigurbjörn að aðstæður til slökkvistarfs séu mjög góðar. Búið er að slökkva eldinn að mestu en slökkviliðsmenn eru enn á staðnum að slökka í glæðum og rífa af þakinu.

„Það var hægt að koma körfubílnum þarna að þannig að menn komust upp á þak og svo er brunahani á Fálkagötu þannig að við komumst í vatn þar svo þetta gekk bara ljómandi vel. Það sakaði engan og það var enginn þarna við þegar eldurinn kom upp en einhverjir voru þó byrjaðir að reyna að slökkva þegar við komum á staðinn,“ segir Sigurbjörn.

Hann segir að 19 manns frá slökkviliðinu hafi farið á staðinn. Það hafi hjálpað til við skjót viðbrögð að ekki voru margir í sjúkraflutningum þegar útkallið kom klukkan 12:28 og flestir því í húsi.

Verið er að gera við húsið.vísir/höskuldur
Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu er slökkvistarfi að mestu lokið en þó er enn verið að slökkva í glæðum og þá er Orkuveitan komin á staðinn til að taka straum af. Þá varð vatnstjón á jarðhæðinni í húsinu við slökkvistarf og er líka verið að sinna því. Það er því allavega hálftími eftir af slökkvistarfinu.



Fréttin var síðast uppfærð klukkan 13:55.


Allar stöðvar slökkviliðsins voru kallaðar út.vísir/höskuldur
Eldurinn var slökktur að mestu utan frá í upphafi.vísir/höskuldur



Fleiri fréttir

Sjá meira


×