Innlent

Nafn konunnar sem lést í bílslysi í Öxnadal

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Vísir
Konan sem lést í bílslysi í Öxnadal síðastliðinn fimmtudag hét Guðbjörg Benediktsdóttir. Hún var 82 ára gömul og búsett í Reykjavík að því er greinir frá á vef Morgunblaðsins.

Tveir bílar sem komu úr gagnstæðri átt lentu saman í Öxnadal á fimmta tímanum á fimmtudag og höfnuðu bílarnir utan vegar í kjölfarið. Þrír voru fluttir á sjúkrahúsið á Akureyri þar sem ökumaður annarrar bifreiðarinnar var úrskurðaður látinn. Hinir tveir sem fluttir voru töldust ekki alvarlega slasaðir.


Tengdar fréttir

Banaslys í Öxnadal

Ökumaður fólksbifreiðar lét lífið í umferðarslysinu í Öxnadal á fimmta tímanum í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×