Erlent

Lögreglukona skotin í höfuðið á lestarstöð í München

Atli Ísleifsson skrifar
Viðbúnaður lögreglu hefur verið mikinn í hverfinu í morgun og hafa almenningssamgöngur raskast vegna málsins.
Viðbúnaður lögreglu hefur verið mikinn í hverfinu í morgun og hafa almenningssamgöngur raskast vegna málsins. Vísir/AFP
Lögreglukona var skotin í höfuðið eftir að maður hrifsaði byssu af henni á lestarstöð í úthverfi München í morgun.

Konan særðist alvarlega og tveir aðrir vegfarendur minna í árásinni sem var gerð á S-Bahnstöðinni Unterföhring í norðurhluta München.

Árásarmaðurinn var skotinn af lögreglu og færður á lögregustöð til yfirheyrslu. Í yfirlýsingu lögreglu segir að árásin flokkist ekki sem hryðjuverkaárás.

Viðbúnaður lögreglu hefur verið mikinn í hverfinu í morgun og hafa almenningssamgöngur raskast vegna málsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×