Fótbolti

Guðbjörg og Hallbera töpuðu naumlega gegn toppliðinu

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Hallbera Guðný Gísladóttir
Hallbera Guðný Gísladóttir Vísir/ernir
Djurgarden fékk Linköping í heimsókn í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.

Landsliðskonurnar Guðbjörg Gunnarsdóttir og Hallbera Guðný Gísladóttir voru á sínum stað í byrjunarliði Djurgarden og léku allan leikinn.

Linköping er langefst í sænsku deildinni um þessar mundir og þær náðu 0-2 forystu með mörkum frá Kristine Minde og Önnu Oskarsson í fyrri hálfleik. 

Mia Jalkerud klóraði í bakkann fyrir heimakonur tíu mínútum fyrir leikslok en nær komust þær ekki og 1-2 tap staðreynd.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×