Fótbolti

Carvajal ekki með Real Madrid á næstunni

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Dani Carvajal
Dani Carvajal Vísir/Getty
Spænski hægri bakvörðurinn Dani Carvajal mun ekki leika með Real Madrid næstu sex vikurnar hið minnsta vegna hjartavandamála.

Í yfirlýsingu frá spænska risanum segir að um veirusýkingu sé að ræða og mun Carvajal eyða næstu vikum í rannsóknir og reyna að fá bót sinna meina.

Carvajal skrifaði nýverið undir nýjan samning við Real Madrid en þessi 25 ára gamli leikmaður hefur leikið hverja einustu mínútu hjá liðinu í spænsku úrvalsdeildinni til þessa á tímabilinu.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×