Innlent

Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2

Það er þjóðarskömm að fólk búi í tjöldum í Laugardal, segir Dagur B. Eggertsson og kallar eftir aðgerðum ríkis og sveitarfélaga. Fjallað verður um málið og litið í heimsókn til tjaldbúa í Laugardal í fréttum Stöðvar tvö klukkan hálf sjö.

Í fréttatímanum förum við líka yfir stöðuna í stjórnarmyndun sem er á lokametrunum, lítum inn á heimsþing kvenleiðtoga sem nú fer fram í Reykjavík og fylgjumst með æfingu á nýrri óperusýningu í Hörpu, þar sem barnakórar, ballettdansarar og einsöngvarar verða í forgrunni. Þetta og margt fleira í fréttum Stöðvar tvö í opinni dagskrá klukkan 18.30.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×