Innlent

Fimmtíu og tvær kærur gefnar út í átaki lögreglunnar gegn ólöglegri atvinnustarfsemi

Birgir Olgeirsson skrifar
200 fyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu og 900 starfsmenn þeim tengdum hafa verið tekin til skoðunar í átaki lögreglunnar.
200 fyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu og 900 starfsmenn þeim tengdum hafa verið tekin til skoðunar í átaki lögreglunnar. Vísir/Ernir
Átak lögreglu á höfuðborgarsvæðinu og á Suðurnesjum gegn ólöglegri atvinnustarfsemi hefur leitt til þess að 52 kærur hafa verið gefnar út.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu greinir frá þessu á Facebook en þar segir að á um það bil sjö vikna tímabili hafa mál nærri 200 fyrirtækja á höfuðborgarsvæðinu og 900 starfsmanna þeim tengdum verið tekin til skoðunar. Lögreglan segir að aðallega sé um að ræða brot á lögum um atvinnuleyfi.

20 fyrirtæki og 41 einstaklingur, 37 karlar og 4 konur hafa verið kærð fyrir samtals 52 brot. Í um helmingi tilvika hafa heimsóknir Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu beinst að veitinga- og skemmtistöðum í umdæminu. Nálægt fimmtungur eftirlitsins hefur snúið að hótelum og heimsóknir lögreglunnar á byggingarsvæði eru ámóta margar.

Einnig hefur verið farið í margar verslanir sömu erinda. Þeir sem lögreglan hefur haft tal af, eða afskipti, eru langflestir á aldrinum 20-39 ára. Við eftirlit lögreglu er einnig kannað hvort dvalarleyfi hjá viðkomandi sé fyrir hendi og að staðið sé við lögbundnar skatt- og gjaldgreiðslur eftir því sem við á.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×