Innlent

Landsliðsmarkvörður Íslands hörfar undan eldgosinu á Balí

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Guðbjörg Gunnarsdóttir stefnir á suðurströndina í dag.
Guðbjörg Gunnarsdóttir stefnir á suðurströndina í dag. VÍSIR/ERNIR
Guðbjörg Gunnarsdóttir, landsliðsmarkaður Íslands í knattspyrnu, er nú stödd á Bali þar sem eldfjallið Agung hefur látið á sér kræla síðustu daga. Hæsta viðvörun er nú í gildi en slík viðvörun gefur til kynna að stórt eldgos sé yfirvofandi og að töluvert öskufall verði vegna þess.

Þegar fréttastofa náði tali af Guðbjörgu var hún stödd í Ubud sem er í um 60 kílómetra fjarlægð frá eldfjallinu. Hún sæi það vel og lýsti því hvernig askan og reykjarmökkurinn sem lá frá Agung stefndi í austurátt.

Guðbjörg segist sjálf hafa sloppið vel frá öskufalli. „Setti út hvítt blað a svalirnar eins og sannur Íslendingur til að athuga ösku og það var ennþá hvítt og hreint daginn eftir,“ segir Guðbjörg glettin.

Sjá einnig: Ferðamennirnir skelkaðir

Öllum sem búa í tíu kílómetra fjarlægð frá fjallinu, eða um hundrað þúsund manns, hefur verið gert að yfirgefa heimili sín.

Guðbjörg gerir ráð fyrir því að hún muni fylgja fordæmi íbúanna og færa sig lengra frá Agung í dag. Stefnan sé sett á suðurströnd Balí enda vilji hún og samflotsmenn hennar ekki vera of nálægt fjallinu ef að öflugt hraungos brestur á.

Flugfélög hafa aflýst ferðum sínum og hefur flugvelli eyjunnar verið lokað. Því eru þúsundir ferðamanna strandaglópar á eyjunni eins og áhorfendur kvöldfrétta Stöðvar 2 fræddust um í gærkvöldi.

Agung hefur ekki gosið í meira en hálfa öld en síðast þegar það gerðist árið 1963 fórust rúmlega 1600 manns og er það eitt mannskæðasta gos í sögu Indónesíu.

Hér að neðan má sjá Guðbjörgu í Ubud.

We are having a wonderful time in Ubud Bali - despite the volcanic eruption #Ubud #Bali

A post shared by Guðbjörg Gunnarsdóttir (@guggag) on


Tengdar fréttir

Ferðamennirnir skelkaðir

Hæsta viðbúnaðarstigi hefur verið lýst yfir á indónesísku eyjunni Balí og um hundruð þúsund þurft að yfirgefa heimili sín þar sem óttast er að eldfjallið Agung byrji að gjósa á næstu dögum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×