Erlent

Hollendingar á nálum vegna yfirvofandi hryðjuverkahættu

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Hollenska lögreglan rannsakaði sendibíl á spænskum númerum í fyrrakvöld. Ökulag bílsins virtist grunsamlegt. Við nánari athugun reyndist bíllinn ekkert tengdur áætlunum um hryðjuverk.
Hollenska lögreglan rannsakaði sendibíl á spænskum númerum í fyrrakvöld. Ökulag bílsins virtist grunsamlegt. Við nánari athugun reyndist bíllinn ekkert tengdur áætlunum um hryðjuverk. vísir/epa
Tónleikum bandarísku hljómsveitarinnar Allah-Las, sem fram áttu að fara í Rotterdam í fyrrakvöld, var aflýst vegna hryðjuverkaógnar. Stuttu eftir að tónleikunum var aflýst handtók lögreglan 22 ára gamlan mann í Zevenbergen, um 40 kílómetra suður af Rotterdam. Vitni að handtökunni sögðu að maðurinn hefði verið leiddur burt með bundið fyrir augun og honum ekið á brott í svörtum BMW.

Sérsveit hollensku lögreglunnar rannsakar málið og talsmaður lögreglunnar sagði við fjölmiðla að rannsóknin væri í fullum gangi. Talsmaður hollensku lögreglunnar sagði að ábending hefði borist um aðsteðjandi hryðjuverkaógn frá spænskum yfirvöldum. „Þetta snerist ekki um eld eða eitthvað þess háttar. Þetta snerist um hugsanlega hryðjuverkaógn og við ætlum ekki að taka neina áhættu þar,“ sagði talsmaðurinn, Gijs van Nimwegen. Einungis örfáir dagar eru liðnir frá því að herskáir íslamistar gerðu árás í Barcelona og Cambrils á Spáni sem varð fimmtán manns að bana.

Lögreglan stöðvaði líka sendibíl á spænskum númerum, en ökulag bílsins þótti undarlegt. Lögreglumenn í skotheldum vestum handtóku ökumanninn og sprengjusveit var send til að rannsaka ökutækið. Þá vakti það grunsemdir að í bílnum voru gashylki. Ökumaðurinn var hins vegar síðar látinn laus. Hann var sagður hafa verið drukkinn en ekki líklegur til að vinna nein ódæði. Skýringin á gashylkjunum var sú að maðurinn væri iðnaðarmaður og notaði gas við störf sín. „Hann hafði engin tengsl við hótunina,“ segir Gijs van Nimwegen við BBC.

Þótt hryðjuverkaárásir hafi verið tíðar víða á meginlandi Evrópu undanfarin ár hafa Hollendingar blessunarlega sloppið hingað til. Yfirvöld þar í landi hafa samt sem áður miðað viðbúnað sinn vegna slíkrar ógnar við næstefsta stig frá árinu 2013. Telja yfirvöld líkurnar á hryðjuverkum vera verulegar. Hljómsveitin Allah-Las hefur oft fengið hótanir vegna nafnsins og viðvörunin frá spænskum yfirvöldum varð til þess að tónleikunum var aflýst á síðustu stundu. Hljómsveitin er á tónleikaferð um Evrópu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×