Innlent

Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur tekin við

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Ríkisstjórnin á tröppunum á Bessastöðum í dag.
Ríkisstjórnin á tröppunum á Bessastöðum í dag. vísir/ernir
Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur, formanns Vinstri grænna og forsætisráðherra, tók við völdum á ríkisráðsfundi á Bessastöðum í dag. Ríkisstjórnina skipa sex karlar og fimm konur.

Fimm ráðherrar koma úr Sjálfstæðisflokknum, þrír ráðherrar koma úr röðum Vinstri grænna og þrír ráðherra eru úr Framsókn. Lyklaskipti í ráðuneytum verða á morgun, á fullveldisdaginn, 1. desember.

Fyrir Vinstri græn er Katrín forsætisráðherra, eins og áður segir, og Svandís Svavarsdóttir er heilbrigðisráðherra.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, framkvæmdastjóri Landverndar, er ráðherra umhverfis-og auðlindamála utan þings. Hann er félagi í Vinstri grænum og er sjöundi utanþingsráðherrann sem skipaður er á lýðveldistíma.

Að neðan má sjá frá komu nýju ráðherranna á Bessastaði.

Fyrir Framsóknarflokkinn tekur Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður flokksins, við lyklunum að sveitarstjórnar- og samgönguráðuneytinu, Lilja Alfreðsdóttir er mennta-og menningarmálaráðherra og Ásmundur Einar Daðason er félagsmálaráðherra.

Þá eru ráðherrar Sjálfstæðisflokksins þau Bjarni Benediktsson sem fer í fjármála-og efnahagsráðuneytið, Guðlaugur Þór Þórðarson fer áfram með utanríkismálin, Kristján Þór Júlíusson er sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, Sigríður Andersen er áfram í dómsmálaráðuneytinu og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir fer svo áfram með ferðamál, iðnað og nýsköpun.

Níu af ellefu ráðherrum hafa áður setið í ríkisstjórn en þeir Guðmundur Ingi og Ásmundur Einar hafa ekki áður gegnt ráðherraembætti.


Tengdar fréttir

Þau kveðja ráðherrastólana

Þrír af ráðherrunum sex verða óbreyttir þingmenn. Benedikt Jóhannesson, Björt Ólafsdóttir og Óttarr Proppé hverfa af þingi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×