Innlent

Alvarlega slasaður eftir árekstur við götusópara

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Götusóparar að störfum
Götusóparar að störfum Vísir/Vilhelm
Ökumaður slasaðist alvarlega þegar hann ók bíl sínum aftan á götusópara á Bæjarhálsi, á móts við Orkuveituhúsið rétt upp úr klukkan fimm í morgun.

Hann var fluttur með sjúkrabíl á slysadeild Landspítalans, en fréttastofu er ekki nánar kunnugt um líðan hans. Ökumaður götusóparans slapp hinsvegar lítið sem ekkert meiddur.

Ekki er nánar vitað um tildrög slyssins, en talið er að bíllinn hafi verið á talsverðri ferð þegar þetta gerðist og er hann talinn gjör ónýtur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×