Enski boltinn

Hodgson hitti tvífara sinn | Myndband

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Roy Hodgson hittir tvífara sinn á Liberty vellinum.
Roy Hodgson hittir tvífara sinn á Liberty vellinum. vísir/getty
Roy Hodgson og lærisveinar hans í Crystal Palace gerðu markalaust jafntefli við Swansea City í gær. Hann hitti líka tvífara sinn fyrir leikinn á Liberty vellinum.

Maðurinn sem um ræðir er í gæslunni á Liberty vellinum Swansea og er ótrúlega líkur Hodgson.

Þeir ræddust við fyrir leikinn og stilltu sér upp fyrir myndatöku. Það fór vel á þessum afar líku mönnum.

Palace hefur ekki tapað í átta leikjum í röð og er tveimur stigum frá fallsæti. Liðið var án sigurs og ekki búið að skora mark þegar Hodgson tók við því.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×