Innlent

Eldur í húsi í Garðabæ

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Frá vettvangi í Garðabæ í dag.
Frá vettvangi í Garðabæ í dag. Vísir/vilhelm
Eldur kom upp í húsi í Urriðaholtshverfinu í Garðabæ á öðrum tímanum í dag. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu kom eldurinn upp í klæðningu hússins.

Þrír slökkviliðsbílar hafa verið sendir á staðinn.

Ekki fást frekari upplýsingar frá slökkviliðinu að svo stöddu.

Uppfært klukkan 14:05: Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu er nú einn bíll á staðnum. Búið er að slökkva allt og eru menn í frágangi. Mikill reykur kom vegna eldsins en slökkviliðsmenn voru fljótir að slökkva hann. Útkallið kom klukkan 13:28.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×