Enski boltinn

Sjáið glæsilega þrennu Jóns Dags fyrir Fulham | Myndband

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Jón Dagur Þorsteinsson fagnar einu marka sinna með liðsfélögum sínum í gær.
Jón Dagur Þorsteinsson fagnar einu marka sinna með liðsfélögum sínum í gær. Mynd/Twittersíða Fulham
Jón Dagur Þorsteinsson fór á kostum með 23 ára liði Fulham í gærkvöldi en hann skoraði þá þrjú mörk í 4-1 sigri á Úlfunum.

Umboðsskrifstofan Total Football hefur nú sett inn myndband af þessum þremur mörkum og þar kemur í ljós að þetta var stórglæsileg þrenna hjá okkar manni.

Myndbandið má sjá hér fyrir neðan.



Jón Dagur skoraði fyrsta markið með laglegu skoti úr teignum eftir stuttan einleik.

Annað markið hans kom þegar hann fylgdi vel á eftir sláarskot liðsfélaga síns og afgreiddi boltann upp þaknetið úr miðjum vítateignum.

Jón Dagur innsiglaði síðan þrennuna sína með því að lyfta boltanum snyrtilega yfir markvörð mótherjann eftir að hafa sloppið einn í gegn.

Hér fyrir neðan má sjá annað myndband með mörkum Fulham í leiknum.





Jón Dagur sjálfur var líka ánægður með frammistöðuna eins og sjá má á Twitter-síðu hans eða hér fyrir neðan. Hann má líka vera það.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×