Innlent

Björgunarsveitir aðstoða konu á Esjunni

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Konan treystir sér ekki niður vegna veðurs.
Konan treystir sér ekki niður vegna veðurs. vísir/gva
Björgunarsveitir Landsbjargar voru kallaðar út á sjöunda tímanum í dag eftir að beiðni barst frá konu um aðstoð. Konan er óslösuð en veður er vont og treystir hún sér ekki niður.

Þorsteinn G. Gunnarsson, upplýsingafulltrúi Landsbjargar, segir að um minniháttar útkall sé að ræða. Í tilkynningu segir að konan haldi kyrru fyrir en sé orðin nokkuð köld og að sökum hvassviðris sé erfitt að fóta sig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×