Innlent

Hrækti á og sparkaði í lögreglumann

atli ísleifsson skrifar
Á lögreglustöð vildi hann slást við lögreglu og var mjög ósamvinnuþýður.
Á lögreglustöð vildi hann slást við lögreglu og var mjög ósamvinnuþýður. Vísir/Pjetur
Maður sem hafði verið staðinn að ölvunarakstri um helgina hrækti á og sparkaði í öxl lögreglumanns sem hafði ekið honum niður á lögreglustöð á Suðurnesjum.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu.

„Á lögreglustöð vildi hann slást við lögreglu og var mjög ósamvinnuþýður. Þar kom í ljós að hann var, auk annarra brota, sviptur ökuréttindum.“

Þá var annar ökumaður handtekinn fyrir ölvunarakstur um helgina en sá viðurkenndi að hann hafi áður verið sviptur ökuréttindum. Hann var handtekinn og færður á lögreglustöð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×