Geir var löngu búinn að ákveða að hvíla Guðjón Val
„Ég hafði alltaf planað þetta. Jafnvel löngu fyrir mót. Jafn frábær og Guðjón Valur er þá þurfum við að fá fleiri aktíva í hornið,“ sagði Geir en Bjarki Már greip tækifærið á lofti og átti stórleik.
„Það er ekki nóg reynsla að spila bara forkeppnisleiki með landsliðinu. Þetta er ofboðslega stórt svið hérna og því var planað að menn fengu tækifæri. Ekki bara gegn minni liðunum heldur á stóra sviðinu. Bjarki gerði þetta með glans. Guðjón vissi af þessu og Bjarki leysti þetta ofsalega vel.“
Ekki missa af neinu sem gerist á HM í Frakklandi. Vísir er með öflugt fréttateymi á mótinu sem færir ykkur allar nýjustu fréttirnar af strákunum okkar. Fylgdu okkur á Facebook, Twitter og Snapchat (sport365).
Tengdar fréttir

Arnór: Síðasti tapaði boltinn situr í mér
"Það er svolítið vonleysi og svekkelsi núna,“ segir Arnór Atlason sem átti magnaðan leik fyrir Ísland í kvöld. Stýrði sóknarleik íslenska liðsins af myndarskap og öll fjögur skot hans fóru í markið.

Vujovic: Framtíð íslenska liðsins er björt
"Ég veit ekki hvað skal segja,“ sagði þjálfari Slóvena, Veselin Vujovic, gjörsamlega búinn á því eftir hinn magnaða leik Íslands og Slóveníu í dag. Drengir Vujovic skriðu út úr höllinni með tvo punkta en það hefði ekki verið mjög ósanngjarnt ef Ísland hefði fengið annað stigið.

Einkunnir strákanna okkar: Bjarki Már og Arnór bestir
Strákarnir okkar í handboltalandsliðinu töpuðu með minnsta mun, 25-26, fyrir Slóveníu í B-riðli heimsmeistaramótsins í dag.

Arnór: Hefðum getað komist tveimur mörkum yfir en ég klúðraði dauðafæri
„Þetta er ótrúlega svekkjandi. Við áttum séns að komast tveimur mörkum yfir og ég til að mynda klúðraði þá dauðafæri,“ segir Arnór Þór Gunnarsson, leikmaður íslenska landsliðsins, eftir svekkkjandi tap gegn Slóvenum á HM í handbolta í Frakklandi.

Kom alla leið frá Hólmavík á leikinn: „Okkur lýst ótrúlega vel á nýju strákana“
„Af hverju ættum við ekki að vera hér?," segir Svanhildur Jónsdóttir, hress stuðningsmaður íslenska landsliðsins, í Metz fyrir leik Íslands og Slóveníu á HM í handbolta sem fram fer í Frakklandi.

Umfjöllun: Ísland - Slóvenía 25-26 | Grátlegt tap í bardaga gegn Slóveníu
Strákarnir okkar urðu að sætta sig við tap í æsilegum slag gegn Slóveníu í dag. Lokatölur 25-26, Slóvenum í vil.

Bjarki: Líður alltaf vel er ég spila handbolta
Bjarki Már Elísson er búinn að bíða lengi eftir sínu fyrsta tækifæri á stórmóti og það kom frekar óvænt í dag. Óhætt er að segja að Bjarki hafi nýtt tækifærið vel því hann fór á kostum gegn Slóvenum.