Erlent

Katarar standa þétt að baki emírnum

Þórgnýr Einar Albertsson skrifar
Hvatningarorð skrifuð á risavaxna mynd af emírnum Tamim bin Hamad al-Thani.
Hvatningarorð skrifuð á risavaxna mynd af emírnum Tamim bin Hamad al-Thani. vísir/afp
Undanfarnar vikur hafa staðið yfir hatrammar deilur á milli Katara og fjögurra annarra arabaríkja, það er Sádi-Arabíu, Bareins, Egyptalands og Sameinuðu arabísku furstadæmanna. Hafa ríkin fjögur beitt viðskiptaþvingunum og ferðabönnum gegn Katörum. Þá hafa sendiherrar ríkjanna verið kallaðir heim frá Katar og skorið hefur verið á stjórnmálasamband við ríkið.

Sádi-Arabar fara fyrir bandalaginu gegn Katörum. Segja þeir helstu ástæðuna fyrir aðgerðum sínum þá að Katarar fjármagni hryðjuverkasamtök og brjóti þar með samkomulag Persaflóaríkja. Þá gagnrýna Sádi-Arabar jafnframt tengsl Katara og katörsku sjónvarpsstöðvarinnar Al Jazeera við stjórnvöld í Íran. Katarar segjast aftur á móti hafa aðstoðað Bandaríkin í stríðinu gegn hryðjuverkum, einkum ISIS.

Undir lok júnímánaðar sendu ríkin fjögur Katörum lista með þrettán kröfum sem Katarar áttu að uppfylla ef þeir vildu fá viðskiptaþvingunum aflétt. Því neituðu Katarar í vikunni.

Áhrifin óljós



„Við eigum sjálfstæða sjóði sem geyma nærri þrefalda landsframleiðslu Katars, við eigum gjaldeyrisforða seðlabankans,“ sagði Ali Sharif al-Emadi, fjármálaráðherra Katars, við The Times í vikunni. Sagðist hann þá ekki hafa áhyggjur af viðskiptabanninu. Katarar ættu einfaldlega nógu mikla peninga til þess að það skipti ekki máli.

„Lánshæfi Bareins og Egyptalands er í ruslflokki. Ef þú lítur til Sádi-Arabíu þá sérðu að þeir eiga í miklum fjárhagsörðugleikum. Hvergi á svæðinu er meiri hagvöxtur en hjá okkur,“ sagði al-Emadi. Benti hann á að hagvöxtur í Katar væri nærri helmingi meiri en í Sameinuðu arabísku furstadæmunum, þar sem næstmestur hagvöxtur er á svæðinu.

En þótt fjármálaráðherrann sé fullviss um að Katarar þurfi ekkert að óttast er óhjákvæmilegt að vandamál fylgi viðskiptaþvingunum nágrannaríkjanna. Greindi Washington Post til að mynda frá því að áttatíu prósent allra matvæla í Katar séu fengin frá nágrannaríkjunum.

Til að sporna gegn skorti á matvælum hafa Katarar leitað til Tyrkja og Írana. Hafa Íranar nú þegar sent flugvélar, fullar af ávöxtum og grænmeti, til Katars og hyggjast Tyrkir gera slíkt hið sama.

Utanríkisráðherrar Sameinuðu arabísku furstadæmanna og Sádi-Arabíu á blaðamannafundi í vikunni.vísir/afp



Gera nýjar kröfur



Seint á fimmtudag barst tilkynning frá utanríkisráðherrum ríkjanna fjögurra. Hétu þeir því að grípa til allra tiltækra ráða til að „standa vörð um réttindi ríkjanna og öryggi og jafnvægi á svæðinu“. Kenndu þeir Katörum um að reyna að spilla fyrir og grafa undan öryggi Persaflóaríkja.

Í tilkynningunni segir að ríkin fjögur líti nú á áður gerðar kröfur sem ógildar og er búist við því að nýjar og strangari kröfur verði gerðar til Katara á næstunni. Er því ljóst að afar stirt er á milli ríkjanna og ekki er útlit fyrir að deilan leysist í bráð.

Á mánudag mun Rex Tillerson, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, ferðast til Kúveits til að reyna sitt besta til að koma á sáttum. Kúveit hefur staðið á milli Katara og ríkjanna fjögurra í hlutverki sáttasemjara undanfarnar vikur.



Emírinn orðinn þjóðhetja



„Við munum streyma út á götu til að berjast fyrir hann,“ sagði hinn 32 ára gamli verkfræðingur Ahmed al-Kuwari í samtali við Reuters í gær. Vísaði hann þar til Tamim bin Hamad al-Thani, emírsins af Katar.

Emírinn er orðinn eins konar þjóðhetja í undanförnum átökum og líta fjölmargir Katarar á hann sem verndara landsins gegn ofríki Sádi-Araba. Í katörskum fjölmiðlum er fjallað um að þúsundir skrái sig í herinn og að Katarar skjóti fast á Sádi-Araba á samfélagsmiðlum.

Og fyrir utan eitt húsa fjölskyldu emírsins í höfuðborginni Doha safnast fólk saman til að skrifa hvatningarorð á risavaxna mynd af emírnum.

Kröfurnar þrettán

  • Loka Al Jazeera og tengdum stöðvum
  • Loka öðrum fjölmiðlum sem ríkið fjármagnar
  • Loka herstöð Tyrkja í Katar og hætta hernaðarsamstarfi við Tyrkland í Katar
  • Draga úr samskiptum við Íran
  • Reka íranska hermenn frá Katar
  • Skera á tengsl við hryðjuverkasamtök á borð við Bræðralag múslima, ISIS, al-Kaída og Hezbollah
  • Hætta að skýla hryðjuverkamönnum í Katar
  • Hætta afskiptum af innanríkismálum ríkjanna fjögurra
  • Hætta að gefa eftirlýstum ríkisborgurum ríkjanna katarskan ríkisborgararétt
  • Svipta þá eftirlýstu ríkisborgararétti
  • Greiða skaðabætur fyrir ofangreind brot
  • Sæta eftirliti næstu tíu ár
  • Samræma stjórnmálastefnu ríkisins við stefnu annarra Persaflóa- og arabaríkja



Fleiri fréttir

Sjá meira


×