Innlent

Sveifluðu hnífum í austurbænum

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Tveir voru handteknir á vettvangi.
Tveir voru handteknir á vettvangi. Vísir/Eyþór
Klukkan 23:15 í gærkvöldi var tilkynnt um menn í útistöðum í austurbæ Reykjavíkur og voru tveir þeirra sagðir sveifla stórum hnífum. Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Tveir menn um þrítugt voru handteknir á vettvangi og vistaðir í fangageymslu í þágu rannsóknar málsins. Ölvun kom við sögu en enginn er talinn hafa meiðst í stympingunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×