Fótbolti

Sara Björk lék allan tímann í sigri á Potsdam

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Sara Björk Gunnarsdóttir
Sara Björk Gunnarsdóttir vísir/getty
Sara Björk Gunnarsdóttir var á sínum stað í liði Wolfsburg í dag þegar liðið heimsótti Turbine Potsdam í þýsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.

Caroline Graham Hansen gerði eina mark leiksins á 65.mínútu og áttundi deildarsigur Wolfsburg í röð staðreynd.

Wolfsburg hefur þriggja stiga forystu á toppi deildarinnar ásamt því að eiga leik til góða á liðið í öðru sæti, sem er Bayern Munchen.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×