Fótbolti

Aron Jó kom inn af bekknum í sigri Bremen

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Aron Jóhannsson og félagar unnu góðan sigur í dag.
Aron Jóhannsson og félagar unnu góðan sigur í dag. Vísir/Getty
Íslenski Bandaríkjamaðurinn Aron Jóhannsson hóf leik á varamannabekknum þegar Werder Bremen fékk Frankfurt í heimsókn í þýsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.

Zlatko Junuzovic kom heimamönnum yfir eftir tæplega hálftíma leik en Luka Jovic jafnaði metin fyrir gestina snemma í síðari hálfleik.

Aroni var skipt inná í stöðunni 1-1 á 75.mínútu og nokkrum mínútum síðar kom sigurmarkið. Argentínumaðurinn David Abraham, varnarmaður Frankfurt, varð þá fyrir því óláni að setja boltann í eigið net og tryggði þar með Aroni og félögum sigurinn.

Werder Bremen siglir lygnan sjó um miðja deild en liðið situr í 11.sæti þýsku úrvalsdeildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×