Klopp íhugar það að vera með Sturridge í einkaþjálfun Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 30. júlí 2018 09:30 Daniel Sturridge fagnar marki á móti Manchester United. Vísir/Getty
Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, reynir nú að finna nýjar leiðir til að halda framherjanum Daniel Sturridge frá meiðslum. Daniel Sturridge hefur staðið sig frábærlega með Liverpool-liðinu á undirbúningstímabilinu og hefur með því opnað fyrir sér leið inn í aðalliðið á nýjan leik. Sturridge hefur aðeins verið í byrjunarliði Liverpool í samtals 23 deildarleikjum á síðustu þremur tímabilum og eftir enn eitt meiðslatímabilið í fyrra þá voru flestir búnir að afskrifa framtíð hans á Anfield. Enski framherjinn ætlaði hinsvegar að berjast fyrir sæti sínu í liðinu og það hefur hann gert með sannkölluðum glæsibrag. Sturridge kom inná sem varamaður í síðasta leik á móti Manchester United og skoraði þá um leið eftir sendingu frá Xherdan Shaqiri. Klopp hrósaði Daniel Sturridge eftir leikinn sem fram fór fyrir framan meira en hundrað þúsund áhorfendur á Michigan leikvanginum.Liverpool: Jurgen Klopp says 'outstanding' Daniel Sturridge has role to play if fit - BBC Sport https://t.co/HJDbfdjeAa — Just Footy (@JustFooty20) July 30, 2018 „Daniel er afburðafótboltamaður. Ef hann er heill þá mun hann fá hlutverk í liðinu,“ sagði Jürgen Klopp eftir leikinn en BBC segir frá. Klopp talaði einnig um að hann væri tilbúinn að setja Sturridge í einkaþjálfun til að reyna að halda honum heilum. „Ég er algjörlega opinn fyrir því að setja hann í sérþjálfun,“ sagði Klopp. Það þýddi að framherjinn myndi ekki æfa eins og félagar hans í liðinu því reynslan af því hefur ekki verið góð síðan að Jürgen Klopp settist í stjórastólinn á Anfield.
Enski boltinn Mest lesið Bein útsending: Hildur hætti eftir 30. hring og nú eru níu eftir Sport Rakel María endaði upp á spítala: „Ég á bara ótrúlega erfitt“ Sport Liverpool tyllti sér á toppinn Enski boltinn FIFA setur Viðar Örn í sex mánaða bann Fótbolti Skiptar skoðanir á nýju merki Njarðvíkur Körfubolti Besti dómarinn í deildinni á von á sínu þriðja barni Fótbolti Stones tryggði City sigur í uppbótatíma Enski boltinn Albert fór meiddur af velli en liðið fór á kostum Fótbolti Í beinni: Haukar - Cocks | Hanar í heimsókn Handbolti Hættir að elska Jürgen Klopp: „Hefur þú gleymt öllu?“ Fótbolti Fleiri fréttir Liverpool tyllti sér á toppinn Stones tryggði City sigur í uppbótatíma Everton vann og endurkomusigrar hjá Leicester og Villa Arsenal mistókst að koma sér á toppinn Langþráð og laglegt mark Höjlund tryggði Man. Utd sigurinn Willum Þór með mikilvægt mark í endurkomusigri Þrjú mörk á sjö mínútum í sannfærandi sigri Spurs Eigandinn þuklaði á fyrirliða kvennaliðsins Í leyfi eftir að hafa misst fjögurra mánaða afabarn „Ævintýri og lygar í boði sumra ykkar“ Mainoo frá í nokkrar vikur Ræddu við tíu en fáir kannast við símtal Vilja prófa að leyfa áfengi á kvennaleikjum í Englandi Pogba segir að danssagan sé lygi Beckham sárnar hvernig fólk lítur á ferilinn hans Labbar mest af öllum í ensku úrvalsdeildinni Allt bendir til þess að Liverpool missi Trent í sumar Eiginkona Kyle Walker sækir um skilnað Neville um Tuchel: „Ákveðin vonbrigði“ Sir Alex bannað að fara inn í klefann eftir leiki Tuchel skrifaði undir samninginn fyrir átta dögum Æfur út í eigendur Man. Utd: „Hendi þeim öllum í risapoka af skít“ Tuchel tekur við enska landsliðinu Stjóri Arsenal sagði upp eftir slaka byrjun Sir Alex slapp ekki við niðurskurðarhnífinn hjá Man. United Stjóri Stuttgart hafnaði United Dagný kom við sögu í jafntefli West Ham Saka hefði getað spilað gegn Finnum Salah farinn heim til Liverpool: Ofbeldisfullir andstæðingar og hættulegur völlur Síðasta tímabil Haaland með Manchester City? Sjá meira