Fótbolti

Gattuso: Verðum að eiga fullkominn leik

Dagur Lárusson skrifar
Gennaro Gattuso
Gennaro Gattuso vísir/getty
Gennaro Gattuso, stjóri AC Milan, segir að liðið sitt verði að eiga fullkomin leik til þess að eiga möguleika gegn Juventus á laugardaginn.

 

Gattuso tók við AC Milan fyrr á tímabilinu og hefur snúið gengi liðsins við síðan en liðið situr í sjötta sæti deildarinnar með 50 stig.

 

,,Juventus er frábært lið, og hafa verið nánast taplausir síðustu sex árin,” sagði Gattuso.

 

,,Ég er viss um það að við munum spila vel á morgun og Juventus muni eiga erfitt með að spila á móti okkur, það er allaveganna markmiðið. ”

 

,,Við verðum hinsvegar að sýna þeim virðingu og átta okkur á því að þeir eru með sterkara lið heldur en við. Við verðum að spila sem lið. Það er mikið undir og við megum ekki við því að misstíga okkur og þess vegna verðum við að eiga hinn fullkomna leik.”

 

Leikur Juventus og AC Milan byrjar klukkan 18:45 á morgun.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×