Gunnar Gíslason, oddviti Sjálfstæðisflokksins, og Matthías Rögnvaldsson, forseti bæjarstjórnar og oddviti Bæjarlistans, fóru með í ferðina þar sem tveimur nýjum skipum Samherja voru gefin nöfn. Flogið var í beinu leiguflugi frá Akureyri til Cuxhaven í Þýskalandi.
Oddvitar Framsóknarflokksins og Samfylkingar lýstu yfir stuðningi við þá sem fóru á meðan Sóley Björk Stefánsdóttir, oddviti VG, og Preben Jón Pétursson, oddviti Bjartrar framtíðar, afþökkuðu boðið.

„Þetta boð fengum við aðeins í krafti stöðu okkar. Við höfum völd í þessum bæ og völd sem þarf að beita.“
Vísaði hún í 8. grein siðareglna sem væru vissulega opin fyrir túlkun.
„Kjörnir fulltrúar þiggja ekki gjafir, fríðindi eða annan viðurgjörning frá íbúum og viðskiptavinum Akureyrarkaupstaðar eða þeim er leita eftir verkefnum eða þjónustu bæjarins þannig að túlka megi sem persónulega þóknun fyrir ákvarðanir á vegum bæjarstjórnar eða nefnda.“

Matthias Rögnvaldsson sagðist hafa fengið stuðning frá bæði bæjarstjóra og bæjarlögmanni að fara í ferðina.
„Ég gat bara ekki hugsað mér að segja nei. Mér hefði fundist það móðgun. Mér hefði fundist það ókurteisi af minni hálfu,“ sagði Matthías. Eðlilegt væri að a.m.k. tveir bæjarfulltrúar færu og minnti á að verkefnið væri upp á 12 milljarða. Þá hefði verið keypt þjónusta í tengslum við verkefnið fyrir 1,5 milljarð króna.
„Mér finnst voðalega slæmt ef einhverjum finnst ég vera óheiðarlegur. Ég hef lagt mig fram að vera heiðarlegur og lagt mig fram við það í bæjarstjórn sem annars staðar.“
Fjallað var ítarlega um heimsóknina á heimasíðu Samherja en um er að ræða fyrstu nýsmíði skipa Samherja í Þýskalandi. Samherji er næststærsta útgerðarfyrirtæki landsins á eftir HB Granda.
Fund bæjarstjórnar frá 23. janúar þar sem siðareglurnar voru til umræðu má sjá hér að neðan.