Ísbjörn braust inn á hótel á Svalbarða Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 3. júní 2018 09:07 Ísbjörn á Svalbarða. Þetta er þó ekki ísbjörnin sem leitaði sér að mat á Isfjord Radio hótelinu í morgun. Vísir/Getty
Rétt eftir klukkan sjö í morgun var tilkynnt um ísbjörn inni á hóteli á Svalbarða. Isfjord Radio, eða Ísafjarðarradíó, var áður fjarskiptarstöð en var svo breytt í ævintýrahótel. Samkvæmt frétt VG voru níu gestir á hótelinu auk fimm starfsmanna þegar ísbjörninn braust þar inn og eru þeir allir óhultir. Þegar viðbragðsaðilar mættu á staðinn á þyrlu, klifraði björninn sjálfur út um lítinn glugga og stakk af samkvæmt frétt Svalbardposten og þar má sjá myndband af ísbirninum komast út um gluggann. Er talið líklegt að hávaðinn í þyrlunni hafi hrætt hann. Ef hann hefði ekki komist sjálfur út hefði þurft að skjóta hann með deyfilyfi. Samkvæmt íbúa á staðnum er ekki óalgengt að ísbirnir á svæðinu fari inn í byggingar í leit að mat. Árið 2014 fór ísbjörn inn á barinn á hótelinu Tulipan. Isfjord Radio Adventure Hotel er auglýst sem „hótel á enda alheimsins.“
Mest lesið „Faðir minn stakk rýtingi í bakið á mér“ Innlent Kona sem sagðist vera Madeleine McCann handtekin Erlent Sagði upp eftir tíðindi dagsins og segir fleiri uppsagnarbréf á leiðinni Innlent Festist í fjöru á höfuðborgarsvæðinu Innlent Hamas reiðubúin að láta af stjórn Gaza Erlent Búin að loka fyrir kort ungmenna á veðmálasíðum Innlent Vilja breyta Landsbankanum í samfélagsbanka Innlent Segir ekkert til í ásökunum KÍ um flokkadrætti Innlent Ákvörðun tekin án samráðs við nokkurn nema MS og Bændasamtökin Innlent Búðarhnuplari í efri byggðum reyndist vera eftirlýstur Innlent Fleiri fréttir Hamas reiðubúin að láta af stjórn Gaza Segir Selenskí hugrakkan leiðtoga Kona sem sagðist vera Madeleine McCann handtekin Aftökur á stríðsföngum sagðar kerfisbundnar Þjóðverjar ganga til kosninga um helgina Farnir að safna matvælum vegna fyrirhugaðra tollahækkana Alríkisdómari neitar að stöðva fjöldauppsagnir Afhentu óþekkt lík í stað Shiri Bibas Dómari skaut eiginkonu sína vegna rifrildis Bandaríkjastjórn neitar að kalla Rússa „árásaraðila“ Trump fetar í fótspor Breivik Afhentu lík yngstu gíslanna sem teknir voru frá Ísrael Trump geti „algerlega“ fellt mál niður af pólitískum ástæðum Ætlar í stórfelldan niðurskurð hjá hernum Trump segir Rússa hafa öll spil á hendi Trump titlar sig konung Danir ausa milljörðum í varnarmál Kallar Selenskí einræðisherra og varpar fram lygum Ákærð fyrir að bana barni fyrir hálfri öld Biður Trump-liða um að virða sannleikann Vildi eitra fyrir forsetanum og skjóta forseta hæstaréttar Segja Musk ekki stýra DOGE en neita að nefna yfirmann Grét í faðmi Rihönnu eftir sýknudóminn Virðist kenna Úkraínumönnum um stríðið og stöðu mála Frans páfi með lungnabólgu í báðum lungum Fullyrðir að aðeins Trump hefði getað komið á friðarviðræðum Nítján af 21 útskrifaðir af sjúkrahúsi Setja fúlgur fjár í herinn: Segir ástandið verra en í kalda stríðinu CIA flýgur herdrónum yfir Mexíkó Halda frekari viðræður um „pirrandi atriði“ og samskipti ríkjanna Sjá meira