Keane kallaði leikmann landsliðsins helvítis aumingja Henry Birgir Gunnarsson skrifar 11. september 2018 16:00 Þeir verða ekki mikið skapheitari en Keane. vísir/getty
Skapið á Roy Keane, aðstoðarlandsliðsþjálfara Írlands, heldur áfram að koma honum í fréttirnar en nú hefur einn leikmaður hætt í landsliðinu út af Keane. Það er liðsfélagi Arons Einars Gunnarssonar hjá Cardiff City, Harry Arter, sem hefur fengið nóg af Keane og gefur ekki lengur kost á sér í landsliðið. Keane hellti sér yfir hann síðasta sumar og kallaði hann þá helvítis aumingja. Arter var þá ekki með á æfingu að læknisráði. Það fannst Keane vera metnaðarleysi og hellti sér því yfir hann. Arter mun ekki snúa aftur í landsliðið á meðan Keane er þar. Þjálfarinn skapheiti lenti líka í átökum við framherjann Jonathan Walters. Ástæðan var sú saman. Walters var ekki að æfa að læknisráði. Walters stóð aftur á móti í hárinu á Keane og hnakkreifst við hann. Þurfti að stía þá í sundur áður en hnefarnir byrjuðu að tala. Framherjinn vildi bera klæði á vopnin og bað Keane um að hitta sig upp á hótelherbergi. Keane afþakkaði það pent. Engu að síður er Walters enn í landsliðinu og allt í góðu á milli hans og Keane. Martin O'Neill landsliðsþjálfari stendur þétt við bakið á Keane í þessu máli.
Þjóðadeild UEFA Mest lesið Tveir látnir úr sitthvorri áhöfninni í siglingakeppni í Sydney Sport Liverpool í litlum vandræðum eftir að hafa lent undir Enski boltinn Ætla að áfrýja rauða spjaldinu Enski boltinn Andri skoraði fyrir Gent í fyrsta sinn síðan í september Fótbolti Butler sagður vilja burt frá Miami sem fyrst Körfubolti Skoraði beint úr hornspyrnu eftir að United missti mann af velli Enski boltinn Willum í byrjunarliðinu er Birmingham tók toppsætið Enski boltinn Látnir gista líka á æfingasvæðinu Enski boltinn Stefndi allt í sigur Chelsea en Fulham hafði aðrar hugmyndir Enski boltinn Jason Daði sneri aftur í lið Grimsby og skoraði Enski boltinn Fleiri fréttir Liverpool í litlum vandræðum eftir að hafa lent undir Andri skoraði fyrir Gent í fyrsta sinn síðan í september Ætla að áfrýja rauða spjaldinu Skoraði beint úr hornspyrnu eftir að United missti mann af velli Jason Daði sneri aftur í lið Grimsby og skoraði Willum í byrjunarliðinu er Birmingham tók toppsætið Slæmur skellur fyrir gestina á St. James Park Stefndi allt í sigur Chelsea en Fulham hafði aðrar hugmyndir Sáu ekki til sólar en unnu samt Hafa tvisvar áður mæst: „Gakpo er sem betur fer í mínu liði núna“ Haaland klúðraði víti og City tapaði stigum Tók „erfiðustu ákvörðun ævinnar“ og fór til Valencia Látnir gista líka á æfingasvæðinu Fimm hlutu dóm fyrir ólætin í Amsterdam Botnliðin eiga von og meistararnir geta fallið Bayern heldur enn í vonina um að næla í Wirtz Coote ætlar ekki að áfrýja brottrekstrinum Amorim hissa á fólkinu í kringum Rashford Rooney og Lampard mætast í fyrsta sinn sem þjálfarar Segir slæmt gengi City ekki Haaland að kenna Liverpool sjö sinnum áður verið toppliðið um jólin Alex Iwobi bregður sér í jólasveinabúning og opnar ókeypis búð Ver jólunum í faðmi fjölskyldunnar og vonast eftir lóðasetti Músaskítur í leikhúsi draumanna Fjármálastjórinn hágrét þegar hann gekk frá uppsögninni Klopp sýndi Red Bull áhuga þegar hann var enn þjálfari Liverpool Manchester United skoðar Malasíuferð strax eftir tímabilið Tækifæri að opnast fyrir Benóný hjá Stockport Inter þremur stigum frá toppnum og með leik til góða Eftirmaður Amorim strax á útleið Sjá meira