Bein útsending: Er þetta ekki bara frekja? Samspil kvíða og hegðunarvanda barna Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 18. janúar 2018 10:45 Urður Njarðvík, dósent við Sálfræðideild HÍ. heldur í dag fyrirlestur um samspil kvíða og hegðunarvanda barna. Vísir/Stefán
Í dag fer fram fyrsti fyrirlesturinn í nýrri fræðslufundaröð Háskóla Íslands sem nefnist Best fyrir börnin. Urður Njarðvík dósent í Sálfræðideild HÍ heldur erindið Er þetta ekki bara frekja? Samspil kvíða og hegðunarvanda barna. Fyrirlesturinn er í dag, 18. janúar, frá klukkan 12 til 13 í í hátíðarsal Háskóla Íslands. Streymt verður frá viðburðinum hér á Vísi í spilaranum neðst í fréttinni klukkan 12:00. Undanfarið hefur mikið verið rætt um kvíða meðal barna og unglinga á Íslandi og skimanir benda til þess að tíðni hans sé að aukast. Í erindinu verður fjallað um birtingarmynd kvíða meðal barna og unglinga og hvernig foreldrar geta tekist á við þennan vanda heima fyrir. Einnig verður rætt um tengsl kvíða við hegðunarvanda, hvernig einkenni kvíða eru oft mistúlkuð sem mótþrói og frekja og hvers vegna börn með ADHD eiga sérstaklega á hættu að þróa með sér kvíðaraskanir. Urður segir í samtali við Vísi að börn með hegðunarvandamál séu oft misskilin og að það sé mikilvægt að fylgjast með sjálfstrausti þeirra og streitu. Urður hefur mikla reynslu af bæði vinnu með börnum og af rannsóknum. Hún segir að börn með hegðunarvanda séu oft mjög misskilin og að einkenni kvíða séu oft mistúlkuð sem mótþrói og frekja. „Til dæmis skapofsaköst. Fyrir þann sem horfir á líta þau oftast út sem frekja og árásargjörn hegðun. Þess vegna tengjum við þessa hegðun við mótþróa og skort á samstarfsvilja. En í kvíða geta komið mjög kröftug skapofsaköst og hegðunarvandi kemur oft til vegna kvíða.“
Mest lesið Silja Björk biður Ingó afsökunar Innlent Helgi í Góu og fyrrverandi borguðu brúsann Innlent Albert mættur í dómsal Innlent Skilur ekkert í niðurstöðu Guðrúnar Innlent Svarar fyrir að hafa banað syni sínum í Kópavogi Innlent Talinn hafa svipt barn frelsi sem hann grunaði um að stela veipi Innlent Gerði sér mat úr kattaráti andlega veikrar konu Erlent „Fólk fer hreinlega grátandi frá mér“ Innlent „Lærisveinn“ Pélicot sagður hafa beitt sömu aðferðum á eigin konu Erlent Sigurður Helgi Guðjónsson látinn Innlent Fleiri fréttir Vara gangnamenn við snjóflóðahættu Þarf ekki leyfi nágranna til að reka háværa daggæslu Silja Björk biður Ingó afsökunar Bjarkey undir árvökulu auga þungavigtar Sjálfstæðisflokks Helgi í Góu og fyrrverandi borguðu brúsann Löng bið barna eftir geðheilbrigðisþjónustu ekki ásættanleg Bæjarstjóri Reykjanesbæjar í veikindaleyfi Bein útsending: Málþing um jafnrétti í heilbrigðisþjónustu Dragi úr virðingu fyrir lögunum Almennt launafólk finni ekki fyrir auknum kaupmætti Fleiri fresta læknisferðum vegna langra biðlista Ríkið verði af milljörðum og óhóflegur kostnaður af heilbrigðisþjónustu Skilur ekkert í niðurstöðu Guðrúnar Vilja halda áfram sameiningarviðræðum á Suðurnesjum Svarar fyrir að hafa banað syni sínum í Kópavogi Mega nú setja svalir á hús í Norðurmýri og Rauðarárholti Albert mættur í dómsal Talinn hafa svipt barn frelsi sem hann grunaði um að stela veipi Sigurður Helgi Guðjónsson látinn Lögregla kölluð til vegna slagsmála Heildartjón á mannvirkjum áætlað allt að 16 til 17 milljarðar Lítið mál að fjölga löggum „Góði líttu þér nær!“ „Þetta er ákall frá ungmennunum sjálfum“ Tækifæri til að sammælast um breytingar á stjórnarskránni „Fólk fer hreinlega grátandi frá mér“ Hafi ekki verið að gera lítið úr öryrkjum og bölvar gallaðri reiknivél Bein útsending: Stefnuræða forsætisráðherra Tárast yfir verði á aðgerð og þúsundir barna á biðlista „Það var mikil geðshræring á heimilinu“ Sjá meira