Innlent

Fjórir vilja leiða lista Sjálfstæðisflokksins á Akureyri

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Gunnar Gíslason bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins er einn þeirra sem sækjast eftir fyrsta sæti í sveitastjórnarkosningunum í maí.
Gunnar Gíslason bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins er einn þeirra sem sækjast eftir fyrsta sæti í sveitastjórnarkosningunum í maí.
Fjórtán einstaklingar gefa kost á sér til röðunar við val á sex efstu sætum framboðslista Sjálfstæðisflokksins á Akureyri við sveitarstjórnarkosningar 26. maí næstkomandi, en framboðsfrestur rann út í dag.

Fjórir einstaklingar gefa kost á sér í efsta sæti listans.

Kosning fer fram á fundi aðal- og varamanna í fulltrúaráði laugardaginn 3. febrúar en kjörnefnd mun gera tillögu um skipan listans í heild sinni að því loknu.

Í framboði eru:

Axel Darri Þórhallsson, viðskiptafræðinemi (1. - 6. sæti)

Baldvin Valdemarsson, bæjarfulltrúi (3. sæti)

Berglind Ósk Guðmundsdóttir, laganemi (1. - 6. sæti)

Elías Gunnar Þorbjörnsson, skólastjóri (4. - 6. sæti)

Eva Hrund Einarsdóttir, bæjarfulltrúi (2. sæti)

Gunnar Gíslason, bæjarfulltrúi (1. sæti)

Ingibjörg Jóhannsdóttir, sálfræðinemi (5. - 6. sæti)

Kristján Blær Sigurðsson, framhaldsskólanemi (3. - 6. sæti)

Lára Halldóra Eiríksdóttir, grunnskólakennari (4. - 6. sæti)

Sigurjón Jóhannesson, sviðsstjóri (3. sæti)

Valdimar O. Hermannsson, verkefnastjóri (3. - 6. sæti)

Þórhallur Harðarson, mannauðsstjóri (4. - 6. sæti)

Þórhallur Jónsson, kaupmaður (1. - 6. sæti)

Þórunn Sif Harðardóttir, starfsmannastjóri (3. - 4. sæti)




Fleiri fréttir

Sjá meira


×