MH370: Gætu fengið rúma sjö milljarða ef brakið finnst Atli Ísleifsson skrifar 10. janúar 2018 10:30 Forsvarsmenn Ocean Infinity og fulltrúar malasískra yfirvalda kynntu fyrirkomulagið í gær. Vísir/AFP
Bandaríska fyrirtækið Ocean Infinity gæti fengið allt að 70 milljónir Bandaríkadala, um 7,3 milljarða króna, frá malasískum yfirvöldum, takist því að hafa uppi á braki MH370, flugvélar Malaysia Airlines sem hvarf í Indlandshafi í mars 2014. 239 farþegar voru um borð í vélinni þegar hún fórst.CNN greinir frá því að starfsmenn fyrirtækisins og fulltrúar malasískra yfirvalda hafi náð samkomulagi um að greiðsla til fyrirtækisins myndi einungis berast ef tækist að finna brakið. Takist það ekki mun engin greiðsla berast. Ocean Infinity hefur tekið norska rannsóknarskipið Seabed Constructor á leigu sem er nú á leið á hafsvæði í Indlandshafi með átta smærri kafbáta sem notaðir verða við leitina. Samkvæmt samkomulaginu mun fyrirtækið byrja á því að leita á 25 þúsund ferkílómetra svæði. Takist fyrirtækinu að finna brakið við leit á fyrstu fimm þúsund ferkílómetrunum fær fyrirtækið greiðslu upp á 20 milljónir Bandaríkjadala. Finnist brakið lengra í burtu verður greiðslan hærri, en að hámarki 70 milljónir Bandaríkjadala, eða 7,3 milljarðar króna. Leit Ocean Infinity hefst um miðjan mánuðinn og mun standa í níutíu daga. Leit að braki vélarinnar, sem var af gerðinni Boeing 777, hefur verið árangurslaus til þessa, en hlutar úr brakinu hefur skolað á land á austurströnd Afríku.
Flugvélahvarf MH370 Fréttir af flugi Vísindi Mest lesið Heyrðu í þyrlum og öskrum út um gluggann Erlent Bifreið ekið á hóp fólks á jólamarkaði Erlent Einar baðst fyrirgefningar Innlent Í eðli Sólveigar að vera með hnefann á lofti Innlent „Maður mun sakna þess mjög“ Innlent Engin breyting á hvalveiðileyfi því það sé glænýtt Innlent Hvetja Íslendinga á svæðinu til að láta vita af sér Innlent Sprenghlægilegt og grafalvarlegt klúður ársins Innlent Starfsmaður sendiráðs hafi skilið við íbúðina í óviðunandi ástandi Innlent Hafi litað bæjarpólitík í Hafnarfirði í áratugi Innlent Fleiri fréttir Heyrðu í þyrlum og öskrum út um gluggann Bifreið ekið á hóp fólks á jólamarkaði Hefja aftur leit að MH370 rúmum tíu árum eftir hvarfið Vara við upprisu ISIS Sjö ára stúlka stungin til bana í skóla Zagreb Eins og Pelicot hafi geymt glæpina á hörðu drifi í huga sínum Repúblikanar höfnuðu fjárlagafrumvarpi sem Trump studdi Sænskur rappari skotinn til bana í bílastæðahúsi Skoða hvort stunguárás hafi átt að líkjast morðinu í New York Mangione líka ákærður af alríkissaksóknurum Saksóknari sagður óhæfur í síðasta málinu gegn Trump Þrjátíu og fimm börn tróðust undir á jólahátíð Danskt sjúkrahús kært til lögreglu vegna tilrauna á ungum drengjum Musk og Trump valda uppnámi í Washington Skorar vestrið á hólm í 21. aldar einvígi Vaktin: Dominique Pelicot dæmdur í tuttugu ára fangelsi Hætta að rukka í almenningssamgöngurnar Dómar yfirvofandi í máli Pelicot Ætla að birta Gaetz-skýrsluna eftir allt saman Hæstiréttur staðfestir dóm yfir Sarkozy Segir sýrlensku þjóðina þreytta og vilja fá að lifa í friði Bera til baka fregnir um að ferðamenn hafi veikst af menguðu áfengi Lýsa þungum áhyggjum af HM í Sádi-Arabíu „Kimdátar“ berjast og falla í Kúrsk Einkavæðingaráform gætu hrakið Ísrael úr Eurovision Úsbeki í haldi Rússa grunaður um drápið á Kirillov Mangione ákærður fyrir morðið á forstjóranum Ákærður fyrir sjöunda morðið Útsendarar SBU sagðir hafa ráðið herforingjann af dögum Losnar úr fangelsi og verður ekki framseldur til Japan Sjá meira