Fótbolti

Gunnhildur Yrsa skoraði í sínum fyrsta leik│Myndband

Dagur Lárusson skrifar
Gunnhildur Yrsa.
Gunnhildur Yrsa. vísir/getty
Landsliðskonan Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir átti óskabyrjun á sínum ferli með Utah Royals í bandaríska fótboltanum í nótt.

Utah Royals tóku á móti Orlando Pride í NWSl deildinni og Gunnhildur var ekki lengi að setja mark sitt á leikinn.

Strax á þriðju mínútu leiksins barst frábær sending inná teig þar sem Gunnhildur var og náði hún að stýra boltanum í netið. Þetta var fyrsta mark Gunnhildar fyrir liðið en þetta var einmitt hennar fyrsti leikur fyrir liðið.

Gunnhildur byrjar því vel með sínu nýja liði og verður fróðlegt að fylgjast með framhaldinu.

Mark Gunnhildar má sjá hér að neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×