Enski boltinn

Pep: Walker er eins og Lahm og Alaba

Dagur Lárusson skrifar
Kyle Walker.
Kyle Walker. vísir/getty
Pep Guardiola, stjóri Manchester City, segir að Kyle Walker sé eins leikmaður og Alama og Lahm sem hann þjálfaði hjá Bayern Munich.

 

Gareth Southgate spilaði með Kyle Walker í miðverði í landsleikjum Englands í vikunni og hrósaði Pep honum fyrir það.

 

,,Þetta var góð ákvörðun hjá Southgate,” sagði Guardiola.

 

,,Walker getur spilað í báðum stöðum. Hann hefur líkamsburðina, hann hefur gáfurnar, getur sent boltann langt og stutt, getur tekið þátt í sókninni og varnarleiknum og þess vegna getur hann spilað í þessari miðvarðar stöðu alveg eins og Lahm og Alaba.”

 

,,Þegar maður kaupir leikmann þá veit maður ekki hvort hann geti spilað ákveðna stöðu fyrr en maður sér hann á æfingum. Walker er búinn að vera með opinn huga fyrir öllu síðan hann kom og þess vegna hefur þetta virkað.”

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×