Fótbolti

Rúnar Már og félagar steinlágu

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Rúnar Már Sigurjónsson.
Rúnar Már Sigurjónsson. Mynd/Heimasíða St. Gallen
Rúnar Már Sigurjónsson og félagar í St. Gallen heimsóttu Luzern í svissnesku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.

Rúnar Már hóf leik á sínum stað á miðjunni hjá St. Gallen og lék fyrstu 78 mínútur leiksins eða þangað til honum var skipt af velli. Þá var staðan 3-0 fyrir Luzern og lauk leiknum þannig.

Rúnar fékk að líta gula spjaldið á 48.mínútu leiksins.

St. Gallen í 3.sæti deildarinnar og missti af tækifæri til að slíta Luzern lengra frá sér en Luzern er í 4.sæti, nú aðeins tveimur stigum á eftir Rúnari og félögum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×