Enski boltinn

Tekur Gerrard við Rangers?

Anton Ingi Leifsson skrifar
Gerrard gæti verið að færa sig yfir til Skotlands.
Gerrard gæti verið að færa sig yfir til Skotlands. vísir/afp
Steven Gerrard kemur til greina sem einn af þjálfurum Rangers en þetta herma heimildir Sky Sports fréttastofunar fyrr í dag. Hinn 37 ára gamli Gerrard er nú þjálfari hjá unglingaliði Liverpool.

Einhverjar viðræður hafa verið á milli Gerrard og skoska félagsins en Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, hafði engar fréttir um þetta á blaðamananfundi fyrr í dag.

„Ég er ekki áhygjufullur því ef, stórt ef, eitthvað gerist er félagið skýrt í því að Gerrard var, er og mun alltaf vera goðsögn hjá Liverpool,” sagði Klopp á blaðamannafundi leiksins í dag.

„Svo hvað sem hann vill gera þá styðjum við hann í því. Þetta er svo einfalt. Ég veit ekki neitt um þetta á þessum tímapunkti og enginn hefur sagt mér neitt.”

Graeme Murty er þjálfari Rangers en hann tók við liðinu í október og mun stýra liðinu út þessa leiktíð. Rangers er í öðru sætinu en 4-0 tap gegn Celtic í undanúrslitum bikarsins skemmdi möguleika Murty á að fá starfið áfram.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×