Fótbolti

Er Griezmann að ganga í raðir Barcelona?

Anton Ingi Leifsson skrifar
Griezmann í leik með Atletico.
Griezmann í leik með Atletico. vísir/afp
Luis Suarez, framherji Barcelona, gaf sterklega í skyn að Antoine Griezmann, ein af skærustu stjörnum Atletico Madrid, gæti gengið í raðir Börsunga von bráðar.

Griezmann hefur verið orðaður mikið við Barcelona en hann hefur skorað 27 mörk á þessu tímabili hjá Atletico í öllum keppnum. Atletico er komið í úrslitaleik Evrópudeildarinnar.

„Það gerir félagið stolt að koma með leikmenn eins og Antoine, Dembele og Coutinho inn í félagið,” sagði Suarez í samtali við Radio Rincon. „Hann hefur spilað á hæsta stigi með Atletico í mörg ár.”

„Hann er ekki að koma til að taka plássið af einhverjum en kemur inn með hugarfar sigurvegarans. Við bjóðum hann velkominn,” sagði Suarez. Athyglisvert viðtal.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×