Ætla sér að flytja líkamsleifar Franco úr Dal hinna föllnu Atli Ísleifsson skrifar 19. júní 2018 23:30 Valle de los Caídos er að finna norðvestur af höfuðborginni Madríd. Vísir/AFP
Ný ríkisstjórn Sósíalista á Spáni (PSOE) hefur gert það að einu af forgangsmálum sínum að flytja líkamsleifar einræðisherrans Franco úr ríkisfjármögnuðu grafhýsi í Dal hinna föllnu (Valle de los Caídos), skammt frá höfuðborginni Madríd. Er þetta liður í áætlun að gera Dal hinna föllnu að stað þar sem hægt er að minnast og fræðast um spænsku borgarastyrjöldina og þar sem ekki verði hægt að upphefja hershöfðingjann og einræðisherrann, að því er fram kemur í frétt Reuters. Aðstoðarforsætisráðherrann Carmen Calvo segir að meirihluti sé á þinginu fyrir ákvörðuninni að flytja líkamsleifar Franco. Vísar hún þar í tillögu sem meirihluti þings samþykkti á síðasta ári. Þó að sú atkvæðagreiðsla hafi ekki verið bindandi þá segir Calvo að ný stjórn muni nú verða við þeim vilja. Sósíalistinn Pedro Sanchez tók nýlega við af Mariano Rajoy sem forsætisráðherra Spánar, en flokkur hans vill að Dalur hinna föllnu, sem er að finna um fimmtíu kílómetrum norðvestur af Madríd, verði breytt í upplýsingamiðstöð um borgarastríðið. Flokkur Rajoy, PP, hefur hins vegar lagst gegn þessum hugmyndum.Franco stýrði Spáni á árunum 1936 til 1975.Vísir/AFPÁætlað er að um jarðneskar leifar 33 þúsund manna hvíli í Dal hinna föllnu. Þúsundir þeirra féllu í baráttu sinni gegn hersveitum Franco á fjórða áratug síðustu aldar og var líkum þeirra komið fyrir í Dal hinna föllnu án samþykkis aðstandenda. Aðstandendur fallinna hafa lengi barist fyrir því að fá líkamsleifar ættingja sinna fluttar þaðan. Fasistar og skoðanabræður Franco flykkjast enn í Dal hinna föllnu á dánardegi einræðisherrans, 20. nóvember, á hverju ári. Það var Franco sjálfur sem opnaði minnisverðann í Dal hinna föllnu árið 1959. Hann stýrði Spáni á árunum 1936 til 1975.
Tengdar fréttir Spánn ætlar að taka við björgunarskipinu Stjórnvöld á Ítalíu og Möltu hafa neitað að leyfa skipinu með á sjöunda hundrað farandfólks að koma þar til hafnar. 11. júní 2018 14:05 Nýr forsætisráðherra Spánar er sósíalisti og hagfræðiprófessor Pedro Sanchez, leiðtogi spænskra sósíalista, sór embættiseið forsætisráðherra í morgun. 2. júní 2018 12:38 Konur halda um spænsku stjórnartaumana Konur eru nú í meirihluta í ríkisstjórn Spánar eftir að sósíaistinn Pedro Sanchéz tók við völdum. 7. júní 2018 07:35 Mest lesið „Hann tók algjörlega völdin yfir lífi mínu“ Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Þiggja milljónir í húsnæðisstyrk þótt þau búi nálægt Alþingi Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á Stuðlum Innlent Þórdís svarar gagnrýni vegna húsnæðisstyrks Innlent Nokkrir foreldrar sóttu börn á lögreglustöð Innlent Vistmaður og starfsmaður Stuðla fluttir á bráðamóttöku Innlent Snorri vill leiða Miðflokkinn í Reykjavík Innlent Átti samtal við Höllu Hrund fyrir stjórnarslitin Innlent Guðmundur Árni hættur við og styður Ölmu Innlent Fleiri fréttir Sprengjudróni hæfði heimili Netanjahús Sér ekki á svörtu hjá „hinum útvalda“ Heita hertum reglum í hælisleitendamálum Ætlar ekki að leyfa Úkraínu að eignast kjarnorkuvopn Bar fram samsæriskenningar á fyrsta kosningafundinum Auðkýfingurinn ekki lengur grunaður um dauða eiginkonunnar Kim sagður ætla að senda tólf þúsund menn til Rússlands Telja árásir sænskra unglinga runnar undan rifjum Írana Hafa birt myndskeið af síðustu augnablikum Sinwar Dauði Sinwar tækifæri til að binda enda á stríðið Fall Sinwar „upphafið að endinum“ Staðfesta andlát leiðtoga Hamas Leiðtogi Hamas „líklega“ felldur „Einstök sýning“ á getu Bandaríkjanna í loftárásum Mætti á Fox í gær og á í viðræðum um viðtal við Rogan Biður um meiri pening vegna „fáránlegra“ laga Banna Ítölum að finna staðgöngumæður erlendis Hundrað ára Carter búinn að kjósa Eftirspurn eftir jarðefnaeldsneyti gæti náð hámarki á þessum áratug Opinberaði „siguráætlun“ sína á þingi Klófestu leigumorðingja sem dulbjó sig sem gamlan mann Metsekt fyrir að mismuna gyðingum og banna þeim að fljúga Lagði Trump til 10 milljarða króna á þremur mánuðum Halda áfram árásum á Beirút en með gult spjald frá Bandaríkjunum Hugmyndir uppi um „úrvinnslumiðstöðvar“ utan Evrópusambandsins Lauk afplánun fyrir teikningu dóttur sinnar Stofna herfylki skipað mönnum frá Norður-Kóreu Sagður ekki munu ráðast gegn olíu- né kjarnorkuinnviðum Kosningafundur breyttist í undarlegt diskótek Saka yfirvöld í Indlandi um ofbeldi og morð í Kanada Sjá meira
Spánn ætlar að taka við björgunarskipinu Stjórnvöld á Ítalíu og Möltu hafa neitað að leyfa skipinu með á sjöunda hundrað farandfólks að koma þar til hafnar. 11. júní 2018 14:05
Nýr forsætisráðherra Spánar er sósíalisti og hagfræðiprófessor Pedro Sanchez, leiðtogi spænskra sósíalista, sór embættiseið forsætisráðherra í morgun. 2. júní 2018 12:38
Konur halda um spænsku stjórnartaumana Konur eru nú í meirihluta í ríkisstjórn Spánar eftir að sósíaistinn Pedro Sanchéz tók við völdum. 7. júní 2018 07:35